Einn tók allar 92,7 milljónirnar í lottói kvöldsins
Einn heppinn miðahafi var með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 92,7 milljónir króna í vinning.
Einn heppinn miðahafi var með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 92,7 milljónir króna í vinning.
Vinningsmiðinn var keyptur á Olís í Norðlingaholti í Reykjavík.
Þrír miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 310 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðanna var keyptur í Hagkaupum á Akureyri en hinir tveir á lotto.is.
Átta með annan vinning í Jóker
Enginn var með fyrsta vinning í Jóker-útdrætti kvöldsins en átta miðahafar voru með annan vinning og hljóta þeir 125 þúsund krónur hver.
Einn miðanna var keyptur í Prins Póló við Þönglabakka í Reykjavík og annar í Mosó Grill við Háholt í Mosfellsbæ. Þrír miðanna voru keyptir í Lottó-appinu og þrír eru í áskrift.
Vinningstölur kvöldins voru 1,6,9,25,35 og bónustalan var 20.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lottó.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗