Brotist inn í heimahús í Árbænum

Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í Árbænum í morgun eða í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni liggur ekki fyrir hver hafi framið verknað…

Lögregla hafði í nógu að snúast í dag.

Lögregla hafði í nógu að snúast í dag. mbl.is/Ólafur Árdal

Tilkynnt var um innbrot og þjófnað í Árbænum í morgun eða í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni liggur ekki fyrir hver hafi framið verknaðinn.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.

Alls voru skráð 57 mál hjá lögreglunni á þessu tímabili og þegar þetta er ritað gista tveir í fangageymslu.

Veittist að fólki í annarlegu ástandi

Í hverfi 108 var tilkynnt um konu í annarlegu ástandi sem sögð var veitast að fólki. Tók lögregla konuna höndum og var hún látin laus eftir viðtal á lögreglustöð.

Lögregla sinnti að vanda eftirliti með umferðinni í dag. Þar ber að nefna að fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Voru þeir þó allir látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.

Þá var ökumaður í Hafnarfirði sektaður fyrir að aka á 121 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90. Tveir til viðbótar voru staðnir að því að brjóta umferðarreglur, annars vegar í miðbænum og hins vegar í Breiðholti. Báðir aðilar voru sektaðir.

Þá var annar ökumaður stöðvaður í Hafnarfirði en við athugun kom í ljós að sá hafði aldrei öðlast ökuréttindi.

Einn var handtekinn í Hlíðunum fyrir meint fíkniefnamisferli.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读