Hvetur Pútín til að binda enda á árásir í Evrópu

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beðið Vladímír Pútín forseta Rússlands um að „draga til baka alla hernaðarlega árásargirni“ gegn Evró…

Trump og Pútín í Kína í síðustu viku.

Trump og Pútín í Kína í síðustu viku. AFP/Vyacheslav Prokofyev

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beðið Vladímír Pútín forseta Rússlands um  að „draga til baka alla hernaðarlega árásargirni“ gegn Evrópu, sem er ný breyting á tóni hans gagnvart rússneska leiðtoganum sem hann kallaði vin sinn í síðustu viku.

Trump sagðist hafa sett fram beiðnina við Pútín þegar þeir hittust í Kína í síðustu viku og bætti við að hann teldi að það myndi stuðla að samkomulagi um að binda enda á stríð Rússa  í Úkraínu.

Ummæli Trumps koma degi eftir að hann tók á móti Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, í Flórída, en að fundinum loknum sendu leiðtogarnir tveir frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem Rússar voru hvattir til að víkka ekki út stríðið í Úkraínu.

„Í samtölum mínum í Kína við Vladímír Pútín forseta Rússlands varði ég miklum tíma í að ræða þá staðreynd að ég vildi sjá Pútín forseta draga til baka alla hernaðarlega árásargirni gegn landsvæðum víðs vegar um Evrópu,“ sagði Trump á samfélagsmiðli sínum Truth Social.

Trump sagðist hafa gert það „í von um að hægt verði að ná samkomulagi milli Rússlands og Úkraínu, og það fljótt“.

Sterkar líkur á því

„Ég tel í alvöru að það séu sterkar líkur á því,“ bætti hann við.

Evrópuríki hafa haft vaxandi áhyggjur af því sem þau líta á sem ögranir af hálfu Rússa, þar á meðal að þrjár rússneskar stýriflaugar lentu í NATO-ríkinu Póllandi í síðustu viku.

Í samtali við fréttamenn á Mar-a-Lago-setri sínu í Flórída í gær sagðist Trump ekki viss um hvort Pútín kæmi á leiðtogafund G20-ríkjanna í Miami í næsta mánuði, „en ef hann vildi koma gæti hann það svo sannarlega“.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab