„Djörf framtíðarsýn“ í formi fleiri göngugatna

Crown Estate, sem fer með eignir bresku konungsfjölskyldunnar, og borgarráð Westminster vinna nú að „djarfri framtíðarsýn fyrir Regent Street, H…

Sadiq Khan, borgarstjóri, viðstaddur er hluta Oxford Street var formlega lokað fyrir umferð ökutækja og hjólreiðafólks í október. AFP/Carlos Jasso

Crown Estate, sem fer með eignir bresku konungsfjölskyldunnar, og borgarráð Westminster vinna nú að „djarfri framtíðarsýn fyrir Regent Street, Haymarket og Piccadilly Circus fyrir komandi kynslóðir“ en svæðin eru einhver þau fjölsóttustu í Lundúnum.

Þann 26. október síðastliðinn var umferð ökutækja og hjólreiðafólks á um 800 metra kafla Oxford Street, einni þekktustu verslunargötu höfuðborgarinnar, bönnuð og telur borgarstjóri Lundúna, Sadiq Khan, breytinguna hafa heppnast vel. Hvetur hann því til þess að flýtt verði fyrir áformum um frekari slíkar breytingar á fleiri svæðum í borginni.

Samkvæmt umfjöllun Financial Times jókst gestafjöldi um Oxford Street um 16% fyrstu vikuna eftir að hluta götunnar var lokað og færslunum í verslunum fjölgaði um 19% á sama tíma.

Fjöldi erlendra gesta er sagður hafa aukist um 42 prósent frá fyrra ári og hefur aukningin leitt til ákalls um að lokað verði fyrir umferð sem fyrst á fleiri verslunargötum borgarinnar, svo sem Regents Street og við Piccadilly Circus.

Njóta ekki stuðnings úr öllum áttum

Þó fer fjarri því að allir styðji frekari aukningu göngugatna í borginni en meðal annars hafa samfélagssamtökin Soho Society lýst yfir áhyggjum af því að umferð færist frá hverfinu og á önnur nærliggjandi svæði vegna áformanna.

Áform um frekari göngugötur munu skapa 35.000 fermetra af viðbótaralmenningsrými á fjölförnustu svæðum Lundúna og hafa þau verið kölluð „Djörf framtíðarsýn fyrir Regent Street, Haymarket og Piccadilly Circus fyrir komandi kynslóðir.“

Lesa má nánar um málið hér.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Erlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读