Tveir Ítalir létust í íranskri drónaárás
Tveir ítalskir tæknimenn létust í íranskri drónaárás í Kúveit í dag, að sögn utanríkisráðherra Ítalíu.
Voru þeir að störfum við loftvarnarkerfi í ratsjárstöð þar í landi.
Írönsk stjórnvöld hafa hert árásir sínar á bæði Kúveit og Barein undanfarna viku.
Auka þrýstinginn á írönsk stjórnvöld
„Um klukkan 14:00 í dag beindust nokkrir íranskir drónar að kúveiskum hernaðarmannvirkjum, þar á meðal ratsjárstöð loftvarna þar sem tveir ítalskir tæknimenn voru að störfum,“ sagði Antonio Tajani utanríkisráðherra Ítalíu í dag.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur kallað eftir auknum þrýstingi á írönsk stjórnvöld í kjölfar árásarinnar.
„Við verðum að auka þrýstinginn á Íran til að binda enda á þessar óásættanlegu árásir á nágranna landsins og samstarfsaðila okkar við Persaflóa,“ skrifaði hún á samfélagsmiðlum.
Persaflóaríkin hafa verið í eldlínunni í átökunum sem hófust með árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í lok febrúar en ítrekað hefur verið ráðist á bandarískar herstöðvar og mannvirki á landsvæði ríkjanna.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗