Fannst látinn í íbúð
Maður á miðjum áttræðisaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Uppsala í Svíþjóð í kjölfar þess er annar, á sjötugsaldri,…
Maður á áttræðisaldri situr í gæsluvarðhaldi í Uppsala í Svíþjóð, grunaður um að hafa verið valdur að dauða annars sem fannst látinn í íbúð í Heby á mánudagsmorgun. AFP
Maður á miðjum áttræðisaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir Héraðsdómi Uppsala í Svíþjóð í kjölfar þess er annar, á sjötugsaldri, fannst látinn í íbúð í Heby, norðvestur af Uppsala, á mánudagsmorgun.
Voru aðstæður á vettvangi þannig að mati lögreglu að hún taldi rétt að rannsaka atburðinn með það fyrir augum að saknæmt athæfi hefði leitt til andláts yngri mannsins. Fór gæsluvarðhaldsþinghaldið að mestu fram fyrir luktum dyrum og neitaði grunaði þar sök.
Að sögn Heddu Wittbom Skog héraðssaksóknara sætir grunaði einangrun í gæsluvarðhaldinu, en lögreglu hefur enn ekki slegið dánarstundu fórnarlambsins fastri, ljóst er þó talið að andlátið hafi borið að höndum tímabilið föstudag til aðfaranótt mánudags.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗