Flugvélin sem gaf skipverjum von: „Við sjáum ljós!“

Flugstjóri TF-SIF segir það „mikla lukku“ að flugvélin hafi verið hér á landi þegar Jökull sökk.

Gunnar Guðmundsson, flugstjóri TF-SIF, segir það mikla lukku að flugvélin hafi verið hér á landi þegar Jökull sökk. Björgunaraðgerðirnar hefðu annars tekið allt aðra stefnu. Samsett mynd: Aðsend/mbl.is/Árni Sæberg

„Við sjáum ljós!“

Skipverjarnir á Jökli hrópuðu í talstöðina þegar þeir sáu ljós á himni og heyrðu í flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF. Mennirnir voru í sjávarháska á miðvikudagskvöld og héldu í fyrstu að björgunarþyrlan væri komin.

Áhöfn TF-SIF var fyrst á vettvang. Gunnar Guðmundsson, flugstjóri vélarinnar, segist hafa fengið gæsahúð þegar hann heyrði í mönnunum.

Hann segir andrúmsloftið hjá skipverjunum hafa breyst um leið og talstöðvarsamband náðist við þá. Þeir fengu von.

Það var „mikil lukka“, að sögn Gunnars, að flugvélin skyldi vera hér á landi þegar slysið varð. Vélin er oft við störf á Miðjarðarhafi og hefðu björgunaraðgerðir tekið aðra stefnu hefði hún ekki verið til taks á miðvikudaginn. 

Í samtali við mbl.is lýsir Gunnar atburðarásinni frá sjónarhóli flugvélaráhafnarinnar og segir að samhliða umræðunni um fjölgun björgunarþyrlna þurfi einnig að huga að því að útvega Gæslunni aðra flugvél.

Fjórtán skipverjum var bjargað en þrír létust þegar Jökull sökk á miðvikudag.

Áhöfn TF-SIF var fyrst á vettvang þegar Jökull sökk. Gunnar Guðmundsson flugstjóri, Örn Sigurgeirsson flugmaður og stýrimennirnir Magnús Örn Einarsson, Jóhann Eyfeld og Teitur Gunnarsson. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Þurfti bara að hlaupa út

Áhöfn TF-SIF var kölluð út skömmu eftir að þyrluáhöfnin fékk sitt útkall á miðvikudag.

„Við fáum þarna útkall Alfa, sem er alltaf svolítið svakalegt, þannig að maður þarf bara að hlaupa út,“ segir Gunnar.

Ýmsar hugsanir fóru í gegnum hugann á leiðinni út á flugvöll. Huga þurfti að eldsneyti, mannafla og veðurskilyrðum.

Þegar áhöfnin kom saman í flugumsjón Gæslunnar fékk hún frekari fregnir af slysinu. Skipverjarnir voru komnir í sjóinn.

Þyrlan lagði af stað örlítið á undan flugvélinni þar sem beðið var eftir viðbótarmannskap. Félagar úr Flugbjörgunarsveitinni voru fengnir með til að svipast um eftir skipverjunum úr lofti. Þá var einnig aukastýrimaður með í för.

Með fulla eldsneytistanka var haldið af stað frá Reykjavík. Gunnar minnir að flugið á vettvang hafi tekið um klukkustund og tuttugu mínútur.

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni.

Jökull ÞH299 á siglingu. Mynd úr safni. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Stöppuðu í þá stálinu

Út frá vindi og öldugangi hafði verið áætlað hvar skipverjarnir væru staddir og stefndi áhöfnin flugvélinni beint þangað.

Áhöfnin vonaðist til að komast niður fyrir skýin en veðurskilyrði voru afar slæm. Mjög lágskýjað var á svæðinu, mikill vindur og ókyrrð í lofti. Flugvélin fór niður í 200 feta hæð, eða um 60 metra yfir sjávarmáli, en komst þrátt fyrir það ekki niður fyrir skýin.

Skömmu áður en flugvélin kom á vettvang hafði áhöfnin náð sambandi við skipverjana í gegnum talstöð sem þeir höfðu meðferðis.

„Þetta leit náttúrulega ekki vel út miðað við þessar fregnir,“ segir Gunnar um upplýsingarnar sem áhöfnin fékk í upphafi.

Þegar áhöfnin heyrði í mönnunum vissi hún hins vegar að einhverjir þeirra væru á lífi. Gunnar segir adrenalínið þá hafa aukist hjá sér.

„Maður reynir og reynir og vonar náttúrulega það besta,“ segir hann.

Sambandið við flugvélaráhöfnina hafði ekki síður áhrif á mennina í sjónum. Gunnar segir andrúmsloftið hjá þeim hafa breyst um leið og þeir heyrðu í áhöfninni.

„Þeir fá von og við erum að stappa í þá stálinu,“ segir hann.

„Við bara segjum þeim að þrauka og að þyrlan og skip séu á leiðinni.“

TF-SIF hefði hæglega getað verið við störf á Miðjarðarhafi þegar Jökull sökk. Gunnar telur að Gæslan þurfi að hafa yfir tveimur flugvélum að ráða. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Fékk gæsahúð þegar mennirnir kölluðu

Þegar flugvélin kom á áætlaðan stað reyndust skipverjarnir vera beint undir henni.

Skipverjarnir sáu ljósin frá flugvélinni og heyrðu í henni. Þeir hrópuðu í talstöðina, létu vita af sér og báðu um að verða bjargað.

„Maður fékk bara gæsahúð við þessi samskipti,“ segir Gunnar.

„Fyrst héldu þeir að þetta væri þyrlan en við náttúrulega getum ekki stoppað og híft þá upp.“

Áhöfnin gerði mönnunum grein fyrir því að þyrlan væri á leiðinni og segir Gunnar það hafa verið mikinn létti fyrir þá.

Gunnar segist hafa fengið gæsahúð þegar skipverjarnir í sjónum sáu ljósin frá flugvélinni og hrópuðu í talstöðina.

Vörpuðu tveimur bátum nánast í blindni

Áhöfnin hélt áfram leit í um 60 metra hæð yfir sjónum. Ljós sáust af og til en erfitt var að greina hvort þau kæmu frá skipverjunum sjálfum, björgunarvestum sem farið höfðu fyrir borð eða baujum.

Staðsetning mannanna hafði verið merkt inn á tæki flugvélarinnar. Stýrimennirnir leiðbeindu flugmönnunum þannig að þeir gátu flogið aftur og aftur yfir mennina og haldið sambandi við þá.

Um borð í TF-SIF voru tveir björgunarbátar. Ákveðið var að varpa öðrum þeirra niður til skipverjanna.

Það þurfti að gera nánast í blindni. Áhöfnin vissi hvar mennirnir voru en sá þá ekki.

Báturinn lenti að sögn Gunnars rétt hjá þeim en þeir náðu ekki til hans. Mikill öldugangur var á svæðinu, erfitt var að synda og mennirnir sáu ekki bátinn.

Áhöfnin gerði aðra tilraun og varpaði hinum bátnum niður en mennirnir náðu heldur ekki til hans.

Á meðan á þessu stóð hélt einn stýrimannanna um borð í flugvélinni uppi talstöðvarsamskiptum við skipverjana.

„Þetta var mjög krefjandi að vera í þessari hæð lengi í ókyrrð og skýjum,“ segir Gunnar og bætir við: „Auðvitað líður manni ekkert vel.“ Hugurinn hafi þó verið hjá mönnunum í fimm gráða köldum sjónum.

„Þetta eru alveg ömurlegar aðstæður,“ segir hann. 

Allt í einu birtist tunglið

Þegar björgunarþyrlan kom á vettvang gerðist nokkuð sem Gunnar segir hafa verið með ólíkindum.

Allt í einu stytti upp.

„Þetta var bara eins og að einhver ryddi skýjunum burt,“ segir Gunnar.

Tunglsljósið lýsti upp svæðið og skyggnið batnaði. Í fjarska sáust skip nálgast til að taka þátt í björgunaraðgerðunum.

Þótt þyrlan hefði lagt af stað á undan flugvélinni var áhöfn TF-SIF fyrst á vettvang. Þegar þyrlan kom hafði flugvélaráhöfnin þegar staðsett skipverjana.

„Þyrlan þurfti ekki að fara að leita,“ segir Gunnar.

Þyrluáhöfnin gat því hafist handa við að hífa mennina upp úr sjónum.

Flugmennirnir gátu þá farið hærra, upp í þúsund fet, eða rúmlega 300 metra hæð, og hringsóluðu yfir þyrlunni á meðan skipverjarnir voru hífðir upp úr sjónum.

Með hitamyndavélum gat áhöfnin fylgst með hífingunum og var reiðubúin að aðstoða ef eitthvað kæmi upp á. Þá gat hún einnig annast talstöðvarsamskipti við land og skip á svæðinu.

Mikil sorg og gleði í flugskýlinu

Hlutverki flugvélaráhafnarinnar var þó ekki lokið.

TF-SIF hélt til Egilsstaða, þangað sem þyrlan flutti skipbrotsmennina. Í kjölfarið flutti áhöfn flugvélarinnar nokkra þeirra til Reykjavíkur.

Þar biðu ættingjar mannanna í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli.

„Það var svakaleg stund þegar þeir komu út úr flugvélinni,“ segir Gunnar og bætir við að þar hafi farið saman mikil sorg og gleði.

„Það var ansi átakanlegt líka,“ segir hann.

Með hverjum deginum segist Gunnar gera sér betur grein fyrir því hversu mikið afrek var unnið á miðvikudag.

„Maður var endalaust að hugsa um þetta,“ segir hann um daginn eftir björgunina. Enn sæki á hann ýmsar hugsanir og tilfinningar.

Ómetanlegt að eiga svona vinnufélaga

Gunnar nefnir sérstaklega hversu góð samvinnan var á milli allra sem komu að björguninni, hvort sem það voru áhafnir flugvélar og þyrlu, áhafnir skipanna, starfsfólk stjórnstöðvarinnar, björgunarsveitarfólk eða læknar.

Honum þykir með ólíkindum að sjá hversu vel allir unnu saman.

Gunnar hrósar einnig félögum sínum um borð í TF-SIF en þeir hafa unnið lengi saman. Hann segir það ómetanlegt „að eiga svona flotta vinnufélaga“.

Hefði getað verið á Miðjarðarhafi

Mikið hefur verið rætt um nauðsyn þess að fjölga þyrlum Landhelgisgæslunnar í kjölfar sjóslyssins. Ríkisstjórnin ákvað í gær að flýta vinnu við að útvega Gæslunni fjórðu þyrluna sem verður staðsett á Akureyri.

Gunnar telur að einnig þurfi að skoða þann möguleika að útvega Gæslunni aðra flugvél.

Flugvélin gegnir fjölþættu hlutverki í leitar- og björgunaraðgerðum Gæslunnar. Hún er meðal annars búin öflugri ratsjá sem gerir áhöfninni kleift að greina ýmislegt í sjónum úr mikilli fjarlægð.

Þá er flugvélin gjarnan send á undan björgunarþyrlunum til að kanna bestu flugleiðir með tilliti til ísingar og mótvinds.

Gunnar bendir hins vegar á að flugvélin sé ekki alltaf tiltæk.

„Hún er í skoðunum og við erum í þjálfunum,“ segir Gunnar og telur því að Gæslan þurfi að hafa yfir tveimur slíkum flugvélum að ráða. Þá sé vélin oft við störf erlendis.

Hann nefnir í þessu samhengi Grænland, þar sem samið hefur verið um að taka í notkun tvær flugvélar sem meðal annars verða nýttar við leitar- og björgunarstörf. Þar búa tæplega sextíu þúsund manns en hér á landi um fjögur hundruð þúsund.

Þegar Jökull sökk hefði TF-SIF til að mynda getað verið við störf á Miðjarðarhafi, eins og hún er oft. Í september sinnti áhöfn vélarinnar landamæragæslu þar á vegum Frontex, landamærastofnunar Evrópu.

„Það er mikil lukka að hún var á svæðinu og þetta hefði tekið allt aðra stefnu ef að hún hefði ekki verið á svæðinu,“ segir Gunnar alvarlegur í bragði.

Hann kveðst ekki geta sagt til um hvernig farið hefði án flugvélarinnar en bendir á að þyrlurnar reiði sig að nokkru leyti á aðstoð hennar.

„Hún er mjög mikilvæg í þessu öllu saman.“

Mestu hetjurnar voru í sjónum

Gunnar hrósar samstarfsfólki sínu en vill ekki síður vekja athygli á þrautseigju skipverjanna sjálfra.

„Mestu hetjurnar eru þeir sem voru í sjónum.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读