Skrifar undir nýjan samning 42 ára

Reynsluboltinn Thiago Silva hefur skrifað undir nýjan samning við brasilíska knattspyrnufélagið Fluminense.

Thiago Silva.

Thiago Silva. ALFP/ Alex Grimm

Reynsluboltinn Thiago Silva hefur skrifað undir nýjan samning við brasilíska knattspyrnufélagið Fluminense. 

Þetta tilkynnti félagið í dag en nýi samningur Silva gildir út næsta ár. 

Silva er 42 ára gamall miðvörður sem gerði garðinn frægan með AC Milan, París SG og Chelsea. 

Hann lék með Porto í Portúgal á síðustu leiktíð en snéri aftur í raðir Fluminense í sumar. Miðvörðurinn verður 43 ára gamall þegar samningur hans rennur út. 

Silva var fyrirliði brasilíska landsliðsins um langt skeið og lék 113 landsleiki. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Íþróttafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读