Fyrirliði United til Ítalíu?
Ítölsku knattspyrnufélögin Juventus og AC Milan hafa áhuga á að fá Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, til liðs við sig, samkvæmt Tutt…
Ítölsku knattspyrnufélögin Juventus og AC Milan hafa áhuga á að fá Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, til liðs við sig, samkvæmt Tuttosport.
Samningur hans rennur út í sumar, þó að United eigi möguleika á að framlengja hann um eitt tímabil til viðbótar.
Juventus mun aðeins reyna að fá portúgalska miðjumanninn til liðs við sig ef félagið tryggir sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili, samkvæmt Tuttosport.
Fernandes lék áður á Ítalíu með Novara, Udinese og Sampdoria.
Miðjumaðurinn hefur einnig haldið opnum þeim möguleika að snúa aftur til Sporting. „Ég mun aldrei loka dyrunum fyrir mögulegri endurkomu til Sporting,“ sagði hann á blaðamannafundi á dögunum.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗