Fyrirliði Liverpool óvænt til Chelsea?

Jamie Redknapp, fyrrverandi miðjumaður Liverpool, hefur hvatt Chelsea til að semja við Virgil van Dijk, en samningur hans við Liverpool rennur ú…

Virgil van Dijk verður samningslaus í sumar.

Virgil van Dijk verður samningslaus í sumar. AFP/Nicolas Tucat

Jamie Redknapp, fyrrverandi miðjumaður Liverpool, hefur hvatt Chelsea til að semja við Virgil van Dijk, en samningur hans við Liverpool rennur út í sumar.

„Chelsea ætti að reyna að fá Virgil van Dijk í sumar. Það er það sem ég myndi gera,“ sagði Redknapp í The Overlap Daily. „Maður fær ekki fimm ár út úr honum, en ég held samt að hann eigi tvö ár eftir á toppnum.“

Van Dijk, fyrirliði Liverpool, er 35 ára og hefur ekki ákveðið framtíð sína. „Ef einhver segir það eða heldur því fram að hann viti hvað ég geri á næsta tímabili, þá er það ekki satt,“ sagði hann fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudag.

„Ef samningurinn verður framlengdur þá sjáum við til. Ef ekki þá kveð ég í sumar.“ Samkvæmt TEAMtalk hefur Liverpool enn áhuga á að framlengja samning hans.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab