Áhrifaríkt símtal í mömmu liðsfélaga

Ein fyrirspurn varð til þess að Hanna Þráinsdóttir var komin með tilboð frá þremur hollenskum körfuknattleiksfélögum seinna sama dag. Hún gekk a…

Hanna Þráinsdóttir.

Hanna Þráinsdóttir. Ljósmynd/Leiden

Ein fyrirspurn varð til þess að Hanna Þráinsdóttir var komin með tilboð frá þremur hollenskum körfuknattleiksfélögum seinna sama dag. Hún gekk að lokum til liðs við Leiden frá KR.

Hanna hafði lengi haft hug á að spila annars staðar í Evrópu eftir háskólaferil sinn í Bandaríkjunum. Eftir tvö tímabil á Íslandi lét hún verða af því að kanna möguleikana.

„Ég var líka búin að vera að skoða skóla og Holland var land sem mér fannst spennandi að búa í. Ég hafði spilað með tveimur hollenskum stelpum og hafði samband við mömmu þeirra,“ sagði Hanna í samtali við Morgunblaðið.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa.

„Ég spurði hana hvernig körfuboltinn í Hollandi væri og hvort hún gæti gefið mér einhver ráð. Hún gekk bara í málið og ég var komin með tilboð frá þremur félögum seinna um daginn.“

Umgjörðin og metnaðurinn hjá Leiden heilluðu Hönnu.

„Þau eru með mjög góða umgjörð og aðstöðu. Þjálfararnir eru með metnaðarfullt plan og það er uppbygging í gangi. Þau eru með þriggja ára plan um að gera góða hluti og ég hafði áhuga á að taka þátt í því. Mér leist vel á allt hér.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读