Kristján Flóki skrifar undir hjá Haukum
Knattspyrnumaðurinn Kristján Flóki Finnbogason hefur skrifað undir samning við Hauka.
Knattspyrnumaðurinn Kristján Flóki Finnbogason hefur skrifað undir samning við Hauka.
Þetta tilkynnti félagið í kvöld en Kristján Flóki gerir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið.
Kristján Flóki lék síðast með uppeldisfélagi sínu FH en samningur hans rann út eftir síðustu leiktíð.
Hann hefur einnig leikið með KR hér á landi og FC Köbenhavn, Start og Brommapojkarna í Skandinavíu.
Haukar unnu 2. deildina á síðustu leiktíð og spila því í næstefstu deild á næsta ári.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗