„Þetta er besta lagkaka sem ég hef gert“
Mjúkir botnar og ríkuleg lög af léttu smjörkremi setja svip á jólalagköku Ara Hermannssonar, bakara og eiganda 280 Bakarís. Hann er mikið jólaba…
Ari Hermannsson, bakari og eigandi 280 Bakarís við Klapparstíg, með jólalagkökuna sem hann bakaði fyrir Jólamat Morgunblaðsins. mbl.is/Árni Sæberg
Mjúkir botnar og ríkuleg lög af léttu smjörkremi setja svip á jólalagköku Ara Hermannssonar, bakara og eiganda 280 Bakarís. Hann er mikið jólabarn sem tengir hátíðina við góðan mat, fjölskylduna og jólaglögg sem hann lagar frá grunni á Þorláksmessu. Í ár hyggst hann líka skapa sínar eigin jólahefðir.
Hann hefur lengi haft dálæti á lagkökum og þegar hann var fenginn til að baka eina slíka fyrir Jólamat Morgunblaðsins var ekkert til sparað.
„Þetta er held ég bara besta lagkaka sem ég hef gert,“ segir hann.
Þótt Ari hafi gaman af því að þróa nýtt bakkelsi á gamla góða græna lagkakan frá Myllunni sérstakan stað í hjarta hans. Henni fylgja minningar úr æsku og hann veit að fleiri tengja við þá tilfinningu.
„Íslendingar elska grænu lagkökuna sérstaklega. Það er eitthvað nostalgískt við lagkökuna hjá okkur Íslendingum sem er líka svo fallegt.“
„Þetta er held ég bara besta lagkaka sem ég hef gert,“ segir Ari Hermannsson, sem hefur lengi haft dálæti á lagkökum. mbl.is/Árni Sæberg
Smjörkremið fær að njóta sín
Í lagköku Ara eru kremlögin rausnarleg og nánast jafnþykk og botnarnir. Leyndarmálið felst í smjörkreminu sjálfu, sem hann gerir úr marens og íslensku smjöri. Útkoman er létt krem sem hann segir ekki jafn sætt og hefðbundið smjörkrem.
„Það er svo gott að hafa smjörkremið nánast jafnþykkt og botnana af því að það er ekki yfirgnæfandi sætt. Það er létt og loftmikið á móti mjúku botnunum.“
Lagkakan fellur vel að sýn Ara á baksturinn. Hann sækir gjarnan innblástur í kunnuglegar kræsingar en gefur þeim sína eigin útfærslu. Í 280 Bakaríi má meðal annars finna stóra giffla, kardimommubollur og ítalskt bakkelsi, enda hefur hann gaman af því að leiða saman ólíkar baksturshefðir.
Bakaríið fagnaði eins árs afmæli í október og Ari segir viðtökurnar hafa farið fram úr vonum.
„Þökk sé frábæru starfsfólki sem vinnur með okkur erum við að mínu mati að gera frábæra hluti. Við erum alltaf að þróa okkur áfram, reyna að gera eitthvað nýtt og ögra okkur. Það er líka gaman.“
Fram undan er tími sem Ari heldur sérstaklega upp á. Jólin leggjast vel í hann og undirbúningurinn í bakaríinu er stór hluti af tilhlökkuninni.
„Ég er mikið jólabarn. Ég elska að græja allt þetta jóladót og fara í jólabaksturinn. Það verður til ákveðin orka í bakaríinu um jólin.“
Smjörkremið er gert úr marens og íslensku smjöri. Ari hefur kremlögin nánast jafnþykk og botnana og segir kremið létt og loftmikið. mbl.is/Árni Sæberg
Jólin byrja í eldhúsinu
Heima fyrir er það líka eldhúsið sem dregur hann að sér. Að undirbúa matinn, hræra í sósum og setjast svo að borðum með fjölskyldunni er það sem hátíðin snýst um í hans huga.
„Ég held að jólin fyrir mér snúist mest um mat og að vera með fjölskyldunni að borða góðan mat.“
Í ár ætlar Ari í fyrsta sinn að halda jólin heima með eiginkonu sinni og börnum. Þar gefst tækifæri til að skapa eigin hefðir, þótt sumar kræsingar úr æsku fái áfram sinn stað á borðinu.
Aðalrétturinn var enn óákveðinn þegar við ræddum saman, en Ari hafði meðal annars verið að hugsa um hreindýr. Eftirrétturinn var hins vegar skýrari í huga hans: möndlugrautur að hætti móður hans, sem er af dönskum ættum, borinn fram með karamellusósu í stað hefðbundinnar kirsuberjasósu.
„Mamma gerir alltaf besta ris a la mande í heimi.“
Laxinn á líka sinn fasta sess. Ari veiðir á sumrin og hefur þegar reykt lax úr eigin afla fyrir hátíðina.
„Það er alltaf falleg hefð að borða reykta laxinn sinn í forrétt.“
Jólaglögg og lagkaka á Þorláksmessu
Ein þeirra hefða sem Ari hefur sjálfur komið á er að laga jólaglögg frá grunni á Þorláksmessu.
„Það er eitthvað svo fallegt við að gera jólaglögg frá grunni og bjóða fólki upp á eitthvað sem yljar á Þorláksmessu. Jólaglöggið er mín fastasta jólahefð.“
Hugmyndin er að fólk geti komið við á rölti um bæinn, fengið sér glögg og notið þess sem bakaríið hefur upp á að bjóða. Lagkakan verður þar í góðum félagsskap smákaka og marsipanbita, en Ari og samstarfsfólk hans ætla að hefja jólabaksturinn af fullum krafti í byrjun desember.
„Við erum allavega með stór áform fyrir jólabaksturinn í ár.“
Jólalagkaka 280
Mjúkir botnar með kakói, kanil og negul og rausnarleg lög af vanillusmjörkremi einkenna jólalagköku Ara. mbl.is/Árni Sæberg
Ein 15 × 20 cm lagkaka með fjórum botnum og þremur lögum af vanillusmjörkremi.
Botnar
- 145 g mjúkt smjör
- 73 g sykur
- 73 g púðursykur
- 2 stór egg, um 120 g án skurnar
- 120 g hveiti
- 2 sléttar msk. kakóduft
- 2 sléttar tsk. malaður kanill
- 1 slétt tsk. malaður negull
- ½ slétt tsk. matarsódi
Marenssmjörkrem
- 90 g eggjahvítur, um 3 eggjahvítur
- 180 g sykur
- 270 g smjör við stofuhita
- fræ úr 1-2 vanillustöngum
Aðferð
- Látið smjör og egg ná stofuhita. Hitið ofninn í 170°C með blæstri og klæðið ofnplötu með bökunarpappír.
- Hrærið smjöri, sykri og púðursykri saman með spaða í hrærivél þar til blandan er slétt. Bætið eggjunum út í einu í einu og skafið niður með hliðum skálarinnar á milli. Hrærið þar til blandan er létt og ljós.
- Sigtið hveiti, kakó, kanil, negul og matarsóda saman. Hrærið þurrefnunum rólega saman við, rétt þar til deigið er einsleitt.
- Dreifið deiginu jafnt í 30 × 40 cm ferhyrning á plötunni. Bakið á miðri grind í 8 mínútur og látið botninn kólna alveg.
Krem og samsetning
- Setjið eggjahvítur og sykur í stálskál yfir potti með sjóðandi vatni. Gætið þess að botn skálarinnar snerti ekki vatnið. Hrærið í blöndunni þar til hún nær 73°C.
- Hellið blöndunni í hrærivélarskál og þeytið þar til marensinn myndar stífa toppa og hefur kólnað niður í stofuhita.
- Bætið mjúku smjörinu út í í þremur til fjórum skömmtum með stuttu millibili á meðan þeytt er rólega. Skafið fræin úr vanillustöngunum út í og þeytið þar til kremið er létt og ljóst.
- Skerið bakaða botninn í fjóra 15 × 20 cm ferhyrninga. Smyrjið kreminu í þrjú jafnþykk lög á milli botnanna. Þykkt kremlaganna er smekksatriði. Kælið kökuna þar til kremið hefur stífnað lítillega og skerið í sneiðar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/61/1696167.jpg)


