Vara við blindhríð á heiðinni
Erfið akstursskilyrði gætu skapast á Hellisheiði og í Þrengslum síðdegis.
Búast má við töluverðri snjókomu og erfiðum akstursskilyrðum á Hellisheiði og í Þrengslum síðdegis í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur ferðalanga til að fara varlega í færslu á Facebook.
Útlit er fyrir að snjókoman verði hvað mest á milli klukkan 14 og 17 og gæti þá orðið blint á köflum.
Snarpar vindhviður í kvöld
Eftir klukkan 21 í kvöld snýst vindur í ákveðna suðlæga átt með skammvinnri hríð á fjallvegum á vestanverðu landinu.
Þá er búist við stormi við fjöll á Tröllaskaga og í Skagafirði þar sem vindhviður gætu farið yfir 40 metra á sekúndu.
Í nótt er útlit fyrir hægari vind og minni úrkomu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
