„Vinir eru farnir og vinnustaðurinn horfinn“

Óli átti að vera um borð í Jökli en var í landi vegna lotu og prófa í skólanum. Sá sem leysti hann af fórst í sjóslysinu.

Óli segir erfitt koma hugsunum sínum í orð eftir slysið og að hann eigi enn erfitt með að ná utan um það sem gerðist. Samsett mynd/Hafþór Hreiðarsson/Facebook

Einn mannanna þriggja sem fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk austur af landinu á miðvikudag var að leysa Óla Ásgeir Stueland, yfirstýrimann skipsins, af. Óli átti að vera um borð en var í landi vegna lotu og prófa í skólanum.

„Það er mér verulega þungbært að hugsa til hans og hinna tveggja sem fórust,“ skrifar Óli í færslu á Facebook, en hann gaf mbl.is góðfúslegt leyfi að birta hana.

Datt aldrei í hug að þetta gæti gerst

Óli segir erfitt koma hugsunum sínum í orð eftir slysið og að hann eigi enn erfitt með að ná utan um það sem gerðist.

„Síðasti sólarhringur hefur verið verulega erfiður. Ég á enn erfitt með að ná utan um það sem gerðist. Jökull var stórt og öflugt skip og mér datt aldrei í hug að þetta gæti gerst. Vinir eru farnir og vinnustaðurinn horfinn.“

Hann vottar fjölskyldum og vinum mannanna þriggja sína dýpstu samúð og sendir samstarfsfélögum sínum, sem komust lífs af, hlýjar kveðjur.

„Þið hafið gengið í gegnum skelfilega lífsreynslu. Ég er innilega þakklátur fyrir að þið komust heim og vona að þið náið ykkur.“

Að lokum þakkar Óli öllum þeim sem komu að björgun samstarfsfélaga hans og vina, þar á meðal Landhelgisgæslunni og áhöfn þyrlunnar sem hann segir hafa skipt sköpum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读