Smáríkið færir út kvíarnar
Það er sem sagt ein í Hafnarfirði og önnur á höfuðborgarsvæðinu sem við erum með í vinnslu sem er smá svona leyndarmál hvar verður staðsett,“ se…
Vilhjálmur Forberg Ólafsson, framkvæmdastjóri netverslunarinnar Smáríkisins, stefnir á opnun tveggja nýrra afhendingarstöðva og er kampakátur með að hafa fengið sextíuþúsundasta viðskiptavininn í hópinn fyrr í vikunni. Samsett/Aðsend mynd/mbl.is/Anton Brink
„Já, já, við erum að vinna í opnun tveggja afhendingarstöðva. Það er sem sagt ein í Hafnarfirði og önnur á höfuðborgarsvæðinu sem við erum með í vinnslu sem er smá svona leyndarmál hvar verður staðsett,“ segir Vilhjálmur Forberg Ólafsson, framkvæmdastjóri netverslunarinnar Smáríkisins, í samtali við mbl.is, spurður út í opnanir nýrra afhendingarstöðva verslunarinnar sem þar með verður með sjö afhendingarstöðvar, eða sendiráð eins og Smáríkið kallar þær, á höfuðborgarsvæðinu auk einnar á Akureyri.
Kveðst hann ekki fullviss um hvort nýju stöðvarnar verði opnaðar fyrir jól.
„Það fer nú í rauninni bara eftir skrifræðinu, við erum í umsóknarferlinu og því öllu, en þetta ætti að ganga eins og smurt,“ telur Vilhjálmur sem hallast frekar að opnun nýju stöðvanna á nýju ári.
Afhendingarstöðvar netverslunarinnar teljast lögum samkvæmt ekki vera áfengisverslanir heldur vörulagerar að sögn framkvæmdastjórans. „Þar geymum við í raun bara vörur og pantanir,“ útskýrir Vilhjálmur og er spurður út í fregnir þess efnis að viðskiptavinir Smáríkisins hafi nýverið fyllt töluna 60.000.
„Akkúrat í þessari viku, í byrjun vikunnar, vorum við að fagna því að sextíuþúsundasti viðskiptavinurinn hóf viðskipti við okkur og á sama tíma erum við með um það bil eina pöntun á mann í mánuði, svona um það bil 60.000 pantanir á mánuði,“ segir hann.
Heildarfjöldinn í netverslun að nálgast 100.000
Smáríkið hafi vaxið gríðarlega að umfangi síðasta árið og veltan margfaldast og segir Vilhjálmur aðspurður að ánægja viðskiptavina sé mikil. „Við leggjum reglulega fram kannanir í samstarfi við Maskínu og Gallup sem kanna viðhorf almennings og líka viðhorf og fjölda viðskiptavina,“ segir hann.
Smáríkinu hefur vaxið fiskur um hrygg og fjölgar „sendiráðum“ sínum sem afhendingarstöðvarnar eru kallaðar. Þær eru ekki áfengisverslanir samkvæmt skilgreiningu heldur vörulagerar og geymslur fyrir pantanir sem svo eru sóttar þangað. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Hafi kannanir þessar leitt það í ljós að heildarfjöldi viðskiptavina netverslunar á áfengismarkaði sé nú að nálgast hundrað þúsund, „ætli hann sé ekki kominn yfir hundrað þúsund núna miðað við tölur síðustu könnunar,“ giskar hann á og segir góða og heilbrigða samkeppni ríkjandi milli netverslana landsins á áfengismarkaði.
„Þær eru jafn misjafnar og þær eru margar og standa sig margar hverjar prýðilega, til dæmis Santé, Arnar [Sigurðsson, eigandi og kaupmaður þar] er mjög öflugur. En verslanirnar eru margar, þær eru núna yfir 20 og nálgast örugglega 30,“ segir Vilhjálmur, en eftir því sem mbl.is komst næst fyrr á þessu ári voru þá 24 netverslanir starfandi á áfengismarkaði landsins.
Opnun víðar um land í sífelldri skoðun
Aðspurður segir Vilhjálmur Smáríkið hafa opnun fleiri afhendingarstöðva á landsbyggðinni í sífelldri skoðun, enn sem komið er skartar Akureyri þeirri einu utan höfuðborgarsvæðisins, en Vilhjálmur kveðst fá fyrirspurnir frá fólki víða um land sem kalli eftir „sendiráðum“ í sinni heimabyggð.
„Við erum náttúrulega bara mjög spenntir fyrir því,“ játar framkvæmdastjórinn.
Vilhjálmur bindur miklar vonir við frumvarp þingmanna nokkurra flokka undir forystu Pawels Bartoszek Viðreisnarþingmanns sem, verði það að lögum, mun heimila innlenda vefverslun með áfengi. Kveður frumvarpið meðal annars á um að einkareknum fyrirtækjum verði heimilt að selja áfengi í smásölu gegnum vefverslanir gegn leyfi frá sýslumanni sem fæli í sér undanþágu frá einkaleyfi ÁTVR.
Vilhjálmur telur að verslunarform ríkisverslunarinnar muni alltaf lifa, fólk kjósi að geta gengið milli rekka, skoðað vörur og leitað ráða hjá vínfróðu afgreiðslufólki. Hann lýkur lofsorði á nýjan forstjóra ÁTVR sem hafi skorið niður í stað þess að reka með halla. Morgunblaðið/Eggert
„Það er bara í vinnslu niðri á þingi núna og við bindum miklar vonir við það, kominn tími til að skýra leikreglurnar fyrir öllum, leyfi, kröfur og eftirlit og annað sem vantar komist á hreint. Óvissa hefur staðið greininni fyrir þrifum,“ segir hann og vísar til Finnlands þar sem nú hafi lög verið sett um netverslun með áfengi.
Gamla verslunarformið muni alltaf lifa
Vilhjálmur fer ekki í grafgötur með að rekstur ríkissamkeppnisaðilans, ÁTVR, sé hið besta mál, þar sé verslunarform sem alltaf muni lifa, fólk vilji fá að ganga milli rekka, skoða vöruna og ræða við sérfræðinga vínbúðanna.
Hvernig líst þér á að nú hafi ÁTVR hafið útkeyrslu áfengis til viðskiptavina sinna?
„Við teljum hana hið besta mál,“ svarar Vilhjálmur, „þetta er bara ÁTVR að taka þátt í nútímanum, mér finnst nýr forstjóri þar [Þorgerður Kristín Þráinsdóttir, frá 1. september 2025] vera að vera frábæra hluti, hún er búin að skera niður í stað þess að reka þetta í halla, hún er að taka á málunum sem mér finnst alltaf að eigi að gera, sama hvaða stofnun er verið að reka, þannig að ég tek þessu fagnandi,“ segir Vilhjálmur enn fremur af nýrri hörku í góðri samkeppni, heimsendingu ÁTVR.
Að lokum segir hann, líka aðspurður, sölu jólabjórsins hafa gengið vonum framar, en ekki er langt síðan Vilhjálmur ræddi upphaf jólabjórsölu í ár sem Smáríkið „þjófstartaði“ í október.
„Við höfum aldrei selt eins mikið af jólabjór og móttökurnar hafa verið glæsilegar, fólk kann líka að meta úrvalið sem við bjóðum upp á. Salan hefur gengið framar vonum,“ segir Vilhjálmur Forberg Ólafsson framkvæmdastjóri Smáríkisins í lokin.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

