Móðir Ásgeirs: „Ég fékk barnið mitt aftur“

„Hann er algjörlega búinn og við erum að reyna svolítið að passa hann af því hann er ennþá svo hátt uppi. Hann á eftir að koma niður og það er þ…

Það var tilfinningaþrungin stund þegar Gerður hitti Ásgeir, son sinn, eftir þrekraunina. Litli bróðir hans vék heldur ekki frá honum. Samsett mynd/Aðsend

„Ég sá bara fyrir mér að hann væri úti í sjó að kalla á mömmu sína. Hann væri grátandi og vantaði mömmu sína.“

Þetta segir Gerður Petra Ásgeirsdóttir, móðir Ásgeirs Elí Gerðarsonar, 18 ára háseta sem bjargað var úr sjónum þegar Jökull ÞH fórst austur af landinu á miðvikudag. Á meðan sonur hennar barðist fyrir lífi sínu gekk hún um gólf heima hjá sér með hendurnar fyrir eyrunum, af ótta við þær fréttir sem kynnu að berast.

Þrátt fyrir óttann og vanmáttinn sem hún upplifði segist Gerður aldrei hafa leyft þeirri hugsun að komast að að hún kynni að missa son sinn.

„Það kom aldrei í hausinn á mér að hann myndi deyja,“ segir hún ákveðin.

Þegar Ásgeir hringdi loks í móður sína um kvöldið virtist hann nokkuð hress í fyrstu en brast svo í grát og greindi henni frá því að þrír félagar hans hefðu farist.

Nú, þremur dögum síðar, er þakklætið ólýsanlegt en sorgin yfir þeim sem fórust jafnframt mikil. Ásgeir er að sögn móður sinnar örmagna eftir lífsreynsluna og hefur fjölskyldan vart litið af honum síðan hann kom heim. Hún óttast að áfallið eigi eftir að hellast yfir hann síðar.

„Hann er algjörlega búinn og við erum að reyna svolítið að passa hann af því hann er ennþá svo hátt uppi. Hann á eftir að koma niður og það er það sem við hræðumst,“ segir Gerður í samtali við mbl.is.  

Sá fyrir sér þriggja ára drenginn sinn

Skömmu fyrir slysið hafði Gerður fengið upp minningu á Facebook af Ásgeiri þar sem hann hljóp um með skikkju og þóttist vera Súperman. Þá var hann þriggja ára gamall. Það var þessi mynd af syninum sem hún hafði í huga á miðvikudag þar sem hún beið á milli vonar og ótta af fréttum af honum.

„Ég sá hann bara allan þennan dag. Á miðvikudaginn labbaði ég um gólf og hélt fyrir eyrun á mér af því að ég vildi ekki heyra neitt ef það var að koma einhver frétt.“

Í huganum var Ásgeir enn litli drengurinn hennar sem þurfti á mömmu sinni að halda.

Þegar hann hringdi loks í hana eftir björgunina spurði hún hann:

„Æ, ertu ekki búinn að kalla og kalla í mömmu?“

Svarið var einfalt: „Nei,“ segir Gerður hlæjandi, en Ásgeir var augljóslega meira að hugsa um stað og stund í þessum erfiðu aðstæðum.

Frænkan brotnaði niður

Gerður var í vinnunni þegar frænka hennar hringdi í hana á miðvikudag og spurði hvort hún hefði heyrt í Ásgeiri, en hún hafði þá heyrt í honum um  morguninn.

Sonur frænku hennar var einnig um borð í Jökli en Gerður vissi ekki af því á þeim tíma.

Frænka hennar brast í grát og greindi henni frá því að eitthvað hefði komið fyrir skipið.

„Hún brotnar bara niður og segir mér að það hafi eitthvað brotnað, báturinn sé brotinn og að Gæslan sé á leiðinni.“

Gerður henti frá sér ryksugunni sem hún var með í hendinni en gerði sér í fyrstu ekki grein fyrir alvarleika málsins. Hún taldi að leki hefði komið að skipinu og að verið væri að sækja skipverjana. Sá fyrir sér að allt yrði í lagi.

Hún ákvað þó að láta leysa sig af í vinnunni og hringdi í eldri bróður sinn, fyrrverandi sjómann. Ljóst var, miðað við viðbrögð hans, að hann hafði heyrt fréttir af málinu.

„Hann segir bara: Ég kem strax.“

Vildu hlífa þeim við fréttunum

Þegar heim var komið fór alvarleiki stöðunnar smám saman að renna upp fyrir Gerði.

Síminn stoppaði ekki. Fólk hringdi og sendi skilaboð en bróðir hennar og vinkona tóku að sér að halda utan um símtöl og skilaboð. Hún vildi heldur ekki skoða fréttamiðla.

„Ég vildi ekki fá neinar fréttir beint.“

Dóttir Gerðar, sem er 27 ára, var einnig komin heim til móður sinnar og sat hjá henni á meðan beðið var fregna.

„Við héldum bara að þeir væru um borð í bátnum og að hann væri að sökkva. Við vorum samt auðvitað alveg hrikalega hræddar.“

Gerður segist enn ekki skilja hvernig fólkinu í kringum þær tókst að hlífa þeim við fréttum af slysinu eins lengi og raun bar vitni. Það hafi ekki verið fyrr en um níuleytið um kvöldið sem þær fengu að vita að skipið væri sokkið.

„Þarna eru teknir alveg margir klukkutímar af okkur í hræðslu,“ segir hún og er þakklát fyrir það.

„Svo tók við viðbjóðslegur tími“

„Svo tók við viðbjóðslegur tími að vita að báturinn væri sokkinn,“ útskýrir Gerður.

Hún hafði fram að því gert sér vonir um að sonur hennar hefði með einhverjum hætti getað komið sér upp á hlið skipsins þótt hún vissi að skipverjar væru í sjónum.

„Ég var allavega með það í hausnum. Og einhvern veginn kom það aldrei í hausinn á mér að hann myndi deyja.“

Öðru máli gegndi um eldri systur Ásgeirs sem óttaðist það versta.

Gerður segist hafa náð að halda þeirri hugsun frá sér. Hún hafi með árunum öðlast ákveðið æðruleysi sem hún bjó ekki alltaf yfir áður.

„Hann var ekkert að fara að deyja. Það er bara nógu mikið búið að ganga á hjá okkur og hann er ekki að fara að deyja. Það er ekki verið að fara að gera okkur það núna.“

Brast í grát í símanum

Gerður man ekki hvað klukkan var þegar símtalið langþráða barst frá syni hennar um kvöldið. Hvort klukkan var ellefu, tólf eða eitt um nóttina hefur hún ekki hugmynd um.

„Þá hringdi hann bara og sagði: „Hæ,“ og ég var alveg: „Hæ, hvað segir þú?“ „Ég er góður, en hvað segir þú?“

Gerður áttaði sig strax á því að sonur hennar var enn að meðtaka það sem gerst hafði og var enn mjög hátt uppi. En eftir að hafa heilsað móður sinni svona glaðlega brast hann í grát og sagði henni að þrír skipverjar væru látnir.

„Það er hrikalegt og maður er enn þá með þá tilfinningu í dag. Það er svo mikil samkennd og svo mikill samhugur með fjölskyldum þeirra.“

Gerður lýsir miklum tilfinningum og flóknum þar sem fjölskyldan gleðst innilega á sama tíma og aðrar fjölskyldur syrgja.

„Ég fékk barnið mitt aftur. Ég, við fengum að knúsa bróður okkar, frænda okkar, barnið okkar. Það er náttúrulega bara himneskt. Það er eitthvað afl sem við ráðum ekki við sem hjálpaði okkur við það. Þú veist, amma hans og afi og einhver æðri máttur.“

Fjölskyldan var tilbúin að leggja af stað austur á land til móts við Ásgeir. Búið var að útvega bíl en að vel athuguðu máli var ákveðið að halda kyrru fyrir. Veðurspáin var ekki góð og enginn í sérlega góðu ástandi til að leggja í slíka ferð.

Skömmu síðar hringdi Ásgeir aftur og greindi móður sinni frá því að hann væri á leið suður með flugi. „Hann sagðist bara þurfa að skila lækninum símanum sínum fyrst,“ segir Gerður.

Veit ekki úr hverju sonurinn er gerður

Þegar fjölskyldan tók á móti Ásgeiri í húsnæði Landhelgisgæslunnar hitti hún jafnframt frænda hans sem hafði verið um borð í Jökli. 

Gerður segir fjölskyldunni hafa brugðið mikið við að sjá hversu slappur hann var. Þá hafi þau áttað sig betur á alvarleika þess sem þeir höfðu gengið í gegnum.

Hún segist enn undrandi á því hversu vel Ásgeir kom undan þessari miklu þrekraun líkamlega.

„Ég veit ekki úr hverju hann er gerður. Hann er gerður úr einhverju öðru en við,“ segir hún.

„Hann var með eðlilegt hitastig og eðlileg lífsmörk þegar hann kom á Egilsstaði,“ segir hún jafnframt, sem sé í raun ótrúlegt eftir um fimm tíma í köldum sjónum í vonskuveðri. Sérstaklega í ljósi þess að Ásgeir var einn af þremur skipverjum sem voru í æfingagöllum en ekki venjulegum björgunargöllum. Hann blotnaði því í gegnum gallann.

Að sjá hina drengina og fjölskyldur þeirra taka á móti þeim hafi verið óraunveruleg upplifun sem erfitt sé að koma í orð.

„Lífið hefur verið skrýtið“

Spurð hvernig lífið hafi verið undanfarna daga segir Gerður það hafa verið skrýtið. Allt sé enn svo óraunverulegt og þess á milli taki við hversdagslegar samræður þar til hugurinn leitar aftur til atburða miðvikudagsins.

„Lífið hefur verið skrýtið. Við erum með endalausa vakt á honum. Maður er náttúrulega rosalega hræddur um hann, af að skellurinn á eftir að koma.“

Ásgeir sé enn þá í mikilli spennu eftir lífsreynsluna og fjölskyldan sé meðvituð um að það kunni að breytast þegar frá líður.

„Hann fær ekkert að fara úr okkar augsýn,“ segir Gerður.

Eldri systir hans stendur þar þétt við bakið á móður sinni en Gerður lýsir henni sem eins konar aukamömmu Ásgeirs.

Hann sé nú orðinn örmagna og hafi sjálfur tekið þá ákvörðun að hafa hægt um sig í dag.

„Hann ætlar aðeins að taka því rólega í dag og spila tölvuleiki með stóra bróður sínum.“

Á eftir að fylgja börnunum alla tíð

Lífsreynslan hefur ekki aðeins tekið á Ásgeir heldur einnig systkini hans.

Auk eldri systur hans voru tveir yngri bræður hans, 14 og 11 ára, á heimilinu á meðan beðið var fregna af skipverjunum.

Sá yngsti er sérstaklega náinn Ásgeiri og segir Gerður erfitt að lýsa því hvernig honum leið þetta örlagaríka kvöld.

„Þetta er eitthvað sem á eftir að fylgja þessum börnum alltaf.“

Gerður finnur þó mun á yngsta drengnum og dóttur sinni eftir því sem lengra líður frá slysinu.

Í nótt voru öll fimm börnin hennar undir sama þaki en mörg ár eru síðan það gerðist síðast. Þá hafa vinir barnanna og aðrir nákomnir fjölskyldunni streymt á heimilið.

„Það bara stoppar ekki heimilið okkar,“ segir hún.

Í gær tókst fjölskyldunni meira að segja að ná saman í fjölskyldumyndatöku, nokkuð sem ekki hafði tekist í áraraðir.

Fallegra en það var erfitt

Það tók á að sögn Gerðar að sjá skipverjana hittast á kyrrðarstund í gær en um leið var fallegt að verða vitni að samheldni þeirra eftir þá miklu þrekraun sem þeir gengu í gegnum saman.

„Það var rosalega tilfinningaþrungið, það var rosa erfitt. En það var eiginlega fallegra og yndislegra heldur en erfitt, bara að sjá samheldnina í þeim.“

Þeir eigi saman reynslu af þessum klukkustundum í sjávarháska sem enginn annar geti skilið til fulls.

Gerður segir son sinn aðeins hafa brotnað niður á kyrrðarstundinni í gær. Hann sé þó duglegur að tjá sig um það sem gerðist og um mennina þrjá sem fórust. „Félagarnir sem dóu. Þetta voru vinir hans.“

Hún segist sjálf hafa lagt mikla áherslu á það í uppeldi barna sinna að þau tjái sig um líðan sína og ræði erfiða hluti.

Slysið hafi jafnframt vakið upp erfiðar minningar hjá mörgum sem áður hafa lent í sjávarháska eða misst ástvini á sjó. Þar á meðal sé eldri bróðir hennar sem sjálfur hefur lent í sjóslysum og misst mann á sjó.

„Maður er svo uppfullur af þakklæti“

Gerður vill koma á framfæri innilegu þakklæti til starfsfólks Landhelgisgæslunnar, allra viðbragðsaðila og þjóðarinnar fyrir þann mikla samhug sem fjölskyldan hefur fundið fyrir.

Hún hugsi til allra þeirra sem brugðust við á miðvikudag, hvort sem þeir komu beint að björguninni eða voru í viðbragðsstöðu.

„Þau voru að stoppa líf sitt til að bjarga börnunum okkar.“

Þá hefur grunnskóli yngri drengjanna hennar þegar haft samband við fjölskylduna og undirbúið hvernig tekið verður á móti þeim þegar þeir snúa aftur í skólann eftir helgi.

Vinir, vinkonur og aðrir sem láta sér annt um fjölskylduna hafa sömuleiðis staðið þétt við bakið á henni.

„Maður er svo uppfullur af þakklæti,“ segir Gerður.

Bara hársbreidd á milli

Þótt gleðin yfir því að hafa fengið son sinn heim sé ólýsanleg fylgir henni djúp sorg. Hugur Gerðar leitar sífellt til fjölskyldnanna þriggja sem fengu ekki að faðma ástvini sína á ný.

„Ég get ekki þakkað nógu mikið fyrir að barnið mitt sé á lífi en hugur minn er samt miklu meira hjá fjölskyldunum sem misstu sína, af því að það var bara hársbreidd þarna á milli.“

Það sé erfitt að takast á við allar þessar tilfinningar í senn og enn erfiðara að lýsa þeim með orðum.

„Maður er himinlifandi og þakklátur og öll þau orð sem því fylgja en maður er líka svo vanmáttugur.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读