Rænd í svefni og skilin eftir peningalaus
Þau voru orðin örmagna af þreytu þegar þau ákváðu að leggja húsbílnum á vörubílastæði og leggja sig.
Brotist var inn í húsbíl Guðnýjar Matthíasdóttur og Róberts Hallbergssonar á meðan þau sváfu í honum og bankareikningar þeirra tæmdir. Ókunnugt fólk kom þeim til bjargar svo þau gætu haldið ferð sinni áfram.
Hjónin, sem hafa búið í húsbíl í rúm fjögur ár og ferðast á honum víða um Evrópu, voru á leið frá Danmörku til Malaga á Spáni þar sem þau áttu að taka á móti börnum sínum á flugvellinum.
Þau voru orðin örmagna af þreytu þegar þau ákváðu að leggja húsbílnum á vörubílastæði og leggja sig.
„Við vorum bara hálf hauslaus af þreytu,“ segir Guðný, en þau Róbert voru gestir í Dagmálum fyrr í vikunni.
https://www.mbl.is/frettir/search/?qs=gu%C3%B0n%C3%BD+matth%C3%ADasd%C3%B3ttir&search-radios=mbl
Leið eins og hún hefði verið lyfjuð
Þegar þau vöknuðu um fimm klukkustundum síðar leið þeim báðum einkennilega.
„Ég var svona þung í hausnum, eins og ég væri bara lyfjuð,“ segir Guðný.
Búið var að brjóta upp lás á bílnum og stela lausafé og ferðatösku. Veskin þeirra lágu á húddi bílsins en bæði greiðslukort og vegabréf voru á sínum stað.
Þau áttuðu sig ekki á umfangi þjófnaðarins fyrr en þau komu á bensínstöð og ætluðu að taka eldsneyti.
„Það var bara allt tómt,“ segir Guðný.
Ókunnugir komu þeim til bjargar
Guðný greindi frá reynslu þeirra á Instagram og leitaði ráða hjá fylgjendum þeirra. Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
„Enginn vildi fá pening til baka og það var bara lagt inn á okkur þannig að við gátum haldið áfram.“
Fyrir tilstilli ókunnugs fólks náðu þau til Malaga rétt í þann mund sem flugvél barnanna lenti.
„Ég get aldrei þakkað nægilega fyrir. Þetta var ótrúlegt.“
Hjónin viðurkenna að þau hafi í kjölfarið velt því fyrir sér að láta húsbílalífið gott heita en smám saman hafi óttinn horfið. Þetta sé eina skiptið á rúmum fjórum árum sem þeim hafi liðið óöruggum á ferðalögum sínum.
Hér má nálgast viðtalið í heild:
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/64/1696421.jpg)
