Ákveða að fá fjórðu þyrluna og hafa hana á Akureyri

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun að hefja vinnu við að fá fjórðu þyrluna hingað til lands, en byggja á flugskýli á Akureyri.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Karítas

Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í morgun að hefja vinnu við að fá fjórðu þyrluna hingað til lands. Gert verður ráð fyrir einskiptikostnaði við það í fjárlögum á næsta ári en byggja á upp aðstöðu á Akureyri. Þar af leiðandi er ljóst að staðsetning fjórðu þyrlunnar verður á Akureyri.

Þetta kom fram í máli Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Hún sagði að ríkisstjórnin muni óska eftir slíkri fjárveitingu til fjárlaganefndar og uppfæra fjármálaáætlun samkvæmt því fyrir árið 2028 með tilheyrandi rekstrarkostnaði ef farin er leiguleiðin. Ekki væri þó komin lokaniðurstaða varðandi leigu eða kaup á þyrlu, en það yrði unnið með Gæslunni. Kristrún taldi þó leiguleiðin líklegri til að byrja með.

Þessari ákvörðun fylgir að fjármunum verður varið til uppbyggingar á flugskýli á Akureyri fyrir þyrluna.

Sagði hún að farið yrði af stað með þessa vegferð strax eftir áramót.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab