Þrettán látist í umferðinni á árinu
Þrettán manns hafa látist í umferðinni það sem af er ári í tíu slysum, þar af a.m.k. þrír ferðamenn.
Í febrúar lést 17 ára drengur á Miklubraut í umferðarslysi. Það sem af er árinu hafa 13 manns látist í umferðinni. Ljósmynd/Aðsend
Þrettán manns hafa látist í umferðinni það sem af er ári í tíu slysum, þar af a.m.k. þrír ferðamenn.
Í gær varð banaslys á Suðurstrandarvegi þar sem ökumaður fólksbifreiðar lést eftir árekstur við vörubifreið.
Þetta er þriðja árið í röð þar sem fleiri en tíu látast í banaslysum, en yfir fimm ára tímabil, frá 2019 til 2023, hafði tekist að halda fjölda látinna í umferðinni undir 10.
Þann 3. janúar lést sjötugur maður í umferðarslysi á Biskupstungnabraut þegar tveir bílar rákust saman við Þrastarlund.
Þann 5. febrúar lést 17 ára farþegi bifreiðar sem hafnaði á vegriði á Miklubraut. Ökumaðurinn slasaðist alvarlega.
Þann 16. júní lést ökumaður í slysi á Hálsasveitarvegi rétt við Reykholt þar sem tvær bifreiðar skullu saman. Var hinn látni ökumaður annarrar bifreiðarinnar.
Þann 20. júní lést ökumaður bifhjóls eftir að bifhjól og bifreið skullu saman við vegamót Kerlingardalsvegar. 55 ára gamall maður lést í slysinu.
Þann 26. júlí lést erlendur ferðamaður eftir að bifreið hans hafnaði utan vegar og valt við Litla-Sandfell á Þrengslavegi.
31. ágúst létust þrjú ungmenni eftir að bifreið þeirra hafnaði utan vegar. Voru þau á aldrinum 16 til 21 árs.
3. október létust tveir erlendir ferðamenn í fjögurra bíla árekstri við Háreksstaðakvísl á Hringveginum. Voru ferðamennirnir báðir á sjötugsaldri.
16. október lést 47 ára karlmaður á Gæsavatnaleið þegar reynt var að losa jeppa sem fest hafði í krapa norðan Vatnajökuls. Ekki var um hefðbundið umferðarslys að ræða í merkingunni árekstur eða velta, en á vef Samgöngustofu hefur það verið flokkað með banaslysum í umferðinni.
Þann 26.nóvember lést sem fyrr segir ökumaður fólksbifreiðar eftir árekstur við vörubifreið á Suðurstrandarvegi.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗