Skipstjórinn brást rétt við og bjargaði mannslífum
Pawel Samilo, einn þeirra 17 sem var um borð í Jökli ÞH sem fórst á miðvikudag, segist aldrei hafa óttast það að hann myndi láta lífið er hann v…
Pawel Samilo, einn þeirra 17 sem voru um borð í Jökli ÞH sem fórst á miðvikudag, segist aldrei hafa óttast það að hann myndi láta lífið er hann var í sjónum eftir að skipið sökk. Hann hafi vitað að sinn tími væri ekki kominn.
Pawel er nú staddur í heimalandi sínu Póllandi ásamt fjölskyldu sinni en hann segist vera í nokkuð góðu líkamlegu standi eftir slysið þrátt fyrir allt. Hann hlaut þó rifbeinsbrot sem þurfa nú að gróa.
Hann hefur unnið á Jökli frá því að skipið var keypt hingað til lands árið 2021. Alls hefur hann þó verið sjómaður hér á landi í 20 ár, allt frá árinu 2006. Pawel er staðráðinn í því að fara aftur á sjóinn við fyrsta tækifæri þrátt fyrir þessa hræðilegu lífsreynslu.
Oft sótt sjóinn í verra veðri
„Ég er fyrst og fremst svo ánægður með að flestir okkar hafi komist lífs af. Í þessum ömurlegu aðstæðum unnum við skipverjarnir vel saman og unnum gott verk,“ segir Pawel spurður hvernig honum líði núna þegar tveir dagar eru liðnir frá slysinu mannskæða.
Ástæða þess að Jökull ÞH sökk var brotin netalúga sem gerði það að verkum að sjór fór óhindrað inn um stjórnborða skipsins. Skipið hvarf í sæ 19 mínútum eftir að neyðarkallið barst frá skipstjóra klukkan 17:05. Skipverjarnir voru í sjónum í um fimm klukkutíma.
„Ég hef verið lengi á sjónum og þess vegna vissi ég allan tímann að eitthvað alvarlegt hefði átt sér stað, sérstaklega þegar sjórinn fór að flæða inn á skipið. Þá var ekkert annað að gera en að gera sig viðbúinn að fara frá borði,“ segir Pawel og bætir við að veðrið hafi verið mjög slæmt en hann hafi þó oft sótt sjóinn í verra veðri.
Pawel segir skipstjóra Jökuls, Kristinn Hrannar Hjaltason, eiga stóran þátt í því að fjórtán skipverjar hafi lifað af. Hann hafi brugðist hárrétt við þegar ljóst var að skipið væri á leið niður.
Missti allt tímaskyn
Þrátt fyrir hve langan tíma áhöfnin var í sjónum kom það Pawel verulega á óvart að fá að vita hve langur tími hefði liðið.
„Ég missti allt tímaskyn, ég vissi ekkert hvað klukkan væri og hve lengi við höfðum verið í sjónum. Ég taldi að við hefðum verið þar í mesta lagi tvo klukkutíma en svo kom þyrlan og sagði að við hefðum verið í sjónum í um fimm klukkutíma. Ég var í áfalli yfir því að við hefðum lifað af svo lengi.“
Pawel náði að halda ró sinni allan tímann og hafði aldrei áhyggjur af því að hann myndi deyja.
„Ég reyndi bara að tæma hugann algjörlega, ég vildi alls ekki hugsa eitthvað slæmt. Ég leyfði bara jákvæðar hugsanir. Ég var allan tímann að hvetja strákana til að halda í trúna og hugsa jákvætt. Heilt yfir vorum við allir nokkuð jákvæðir en auðvitað greip um sig einhver örvænting hjá sumum. Það var svo dimmt og við vissum ekki hvað myndi gerast.“
Voru Pawel eins og fjölskylda
Eins og áður segir hefur Pawel sótt sjóinn hérlendis í 20 ár. Hann er hvergi banginn og hyggst halda áfram á sjónum þrátt fyrir slysið.
„Ég er 100% viss um það að ég ætla aftur á sjóinn á Íslandi. Þetta var hræðileg lífsreynsla en þetta var bara eitt skipti. Ég vissi það allan tímann meðan ég var í sjónum að þetta væri ekki minn síðasti túr.“
Þrír skipverjar komust ekki lífs af. Einn þeirra, Jacek Belina, var frá Póllandi eins og Pawel en hinir tveir sem fórust voru íslenskir og hétu Eggert Ellertsson og Aðalsteinn Steinþórsson. Jacek og Aðalsteinn höfðu starfað með Pawel í áraraðir og voru góðir vinir hans. Eggert hafði hann þekkt í styttri tíma en Pawel segir þá alla hafa verið frábæra sjómenn og enn betri manneskjur.
„Minning þeirra mun lifa að eilífu. Í raun voru þetta ekki bara vinir mínir heldur voru þeir mér eins og fjölskylda,“ segir Pawel um hetjur hafsins sem fórust á miðvikudag.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗