Ákvað að slíta línuna milli togarans og mannanna

Togari hafði komið línu til sex skipverja af Jökli sem lágu í sjónum þegar Jens Þór Sigurðarson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, ákvað að slíta tenginguna við skipið. Hann taldi mönnunum betur borgið með því að áhöfn hans hífði þá upp í þyrluna. Í fjögurra til fimm metra öldu gat verið hættulegt að ná þeim um borð í togarann.

„Ég mat það á þeim tíma skynsamlegt að slíta tengingunni,“ segir Jens í viðtali í Spursmálum. Hann segir að einhverjum kunni eftir á að þykja ákvörðunin glannaleg. Þegar hún var tekin hafi hann horft til aðstæðna á sjónum og þess hvernig áhöfninni hafði gengið að ná öðrum skipverjum upp. Sjö voru þegar komnir um borð í þyrluna.

Höfðu bundið sig saman

Sautján voru um borð í Jökli þegar hann sökk á miðvikudag úti fyrir austurströnd Íslands. Enginn komst í björgunarbát. Skipverjarnir höfðu hins vegar komist í björgunargalla og bundið sig saman í hópum. Jens segir vinnubrögð þeirra hafa verið fumlaus þegar á reyndi.

„Það hefur bjargað þeim, það er bara ekki spurning,“ segir hann.

Þyrluáhöfnin hóf hífingu við hóp sem var nánast í flugleið hennar. Hún tók sjö menn úr þeim hópi áður en hún sneri sér að mönnunum sex sem togarinn hafði komið línu til. Jens segir ástand skipverjanna, vindinn og staðsetningu skipanna hafa ráðið því í hvaða röð hann nálgaðist mennina. Hann vildi hafa skipin nærri en þurfti jafnframt að halda leið þyrlunnar greiðri þegar flogið var frá hífingarstað.

Jens bendir á að veltingur í svo mikilli öldu geri það erfitt að ná fólki úr sjónum um borð í togara, jafnvel þótt skipið sé stórt. Hann taldi áhöfn sína geta haldið hífingunni áfram við þessar aðstæður. Eftir að tengingin var rofin tók þyrlan fyrst fjóra úr hópnum. Jens flaug frá, sneri aftur og áhöfnin hífði hina tvo upp.

Flaug frá síðustu tveimur

Þá átti þyrluáhöfnin enn eftir að sækja tvo menn úr fyrri hópnum. Með hverjum skipverja sem kom um borð jókst álagið á þyrluna. Áður en komið var á vettvang hafði áhöfnin skilið sæti, börur og annan lausan búnað eftir á Hornafirði til að létta vélina. Þegar þrengja tók að um borð kom jafnvel til álita að losa rekka fyrir sjúkrabúnað og varpa honum í hafið.

Jens sá á mælum þyrlunnar að álagið á vélbúnaðinn var komið að mörkum og sjálfstýringin var farin að blikka. Hann ákvað að rjúfa hífinguna og fljúga í hring við mennina á meðan þyrlan brenndi eldsneyti. Hún léttist um 140 kíló og gat þá snúið aftur eftir þeim. Sjúkrabúnaðurinn var áfram um borð.

Jens segir að það hafi verið það síðasta sem hann vildi að skilja tvo lifandi menn eftir í sjónum, í svartamyrkri og mikilli öldu. Þegar þeir voru komnir upp voru 23 um borð í þyrlunni, þar af sex í áhöfn. Þyrlan hélt til Egilsstaða með alla sautján skipverjana. Fjórtán lifðu af en þrír létust.

Viðtalið við Jens Þór má heyra í heild sinni hér:

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Helstu fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读