„Alltof erfitt að slá ekki til og hoppa með“

Fór til Balí og sá ekki eftir því.

Andrea fór í heimsreisu eftir menntaskóla með bestu vinkonu sinni.

Andrea fór í heimsreisu eftir menntaskóla með bestu vinkonu sinni. Ljósmynd/Aðsend

Andrea Ósk Þorkelsdóttir hefur í nógu að snúast með þrjá litla stráka. Andrea reynir eins og hún getur að skreppa í ferðalög með vinkonum eða fjölskyldunni á milli þess sem hún starfar á á markaðs- og viðburðarstofunni Kvartz, stýrir hlaðvarpinu Undirmannaðar og spilar handknattleik með Aftureldingu.  

„Ég er mjög opin þegar kemur að ferðalögum. Þau geta verið allt frá rólegri helgarferð með vinum eða fjölskyldunni yfir í alvöru ævintýraferðir til framandi landa. En núna, með þrjá stráka á aldrinum fjögurra til átta ára, hafa stuttu helgarferðirnar og klassísku Spánarferðirnar aðeins tekið yfir,“ segir Andrea þegar hún er spurð hvernig ferðalögum hún er hrifin af. 

Andrea Ósk Þorkelsdóttir fór til Balí í fyrra og naut þess í botn. Ljósmynd/Aðsend

Fór í heimsreisu í staðinn fyrir djammferð

Andrea segir að ferðaáhuginn hafi kviknaði fyrir alvöru rétt eftir mennastkóla. Hún og besta vinkona hennar ákváðu að sleppa því að fara í hefðbundna útskriftarferð sem snýst aðallega um djamm og fóru þess í stað í heimsreisu til þess að skoða heiminn. 

„Við skelltum okkur til Suður-Afríku í safarí þar sem við gistum meðal annars í kofa í miðjum frumskóginum, það var skemmtileg upplifun. Baðherbergið var opið í loftið þannig við biðum alltaf eftir því að fá eitt stykki apa eða apaskít á hausinn meðan við vorum á klósettinu eða að sturta okkur. Skiptumst á vöktum að horfa upp á meðan hin sturtaði sig. Það var lítið í boði þarna að vera hræddar við allar pöddurnar og lærðum við fljótt að búa bara í sátt og samlyndi með þeim, að einhverju leyti allavega. Þaðan lá leiðin til Taílands og var fyrsta stopp Bangkok, Chiang Mai, Koh Tao og Koh Samui. Eftir það fórum við til Sri Lanka og ákváðum svo að enda ævintýrið í lúxusnum í Dubaí. Þarna kviknaði klárlega ferðaáhuginn og gæti ég talað endalaust um þessa ferð.“

Andrea er spennt fyrir því að sjá heiminn með augum sona sinna. Ljósmynd/Aðsend

Andrea fór í safarí í Suður-Afríku.

Andrea fór í safarí í Suður-Afríku. Ljósmynd/Aðsend

Andrea var ekki gömul þegar hún fór fyrst á flakk um heiminn. Ljósmynd/Aðsend

Barcelona og New York

Áttu uppáhaldsborg í Evrópu og af hverju?

„Mig langar klárlega að ferðast meira um Evrópu. Ég hef mikið farið á þessa klassísku staði á Spáni, í Þýskalandi, Englandi, Svíþjóð, Belgíu og Noregi, en uppáhaldsborgin mín í Evrópu er án efa Barcelona. Það er bara eitthvað við hana sem greip mig algjörlega. Hún er fullkomin blanda af öllu, geggjaður matur, stutt í ströndina, flottar byggingar og svo er stemningin svo afslöppuð en á sama tíma skemmtileg orka í borginni. Ég var þarna í byrjun sumars og mig langar strax aftur.“

Áttu uppáhaldsstað fyrir utan Evrópu?

„Það er eitthvað við New York. Ég veit að það er algjör klisja og allt það en ég er alltaf jafn heilluð í hvert skipti sem ég fer þangað. Það er eitthvað við orkuna í þeirri borg, upplifi alltaf eitthvað nýtt í hverri einustu ferð.“

Andrea er hrifin af ævintýralegum ferðum en líka skemmtilegum borgarferðum.

Andrea er hrifin af ævintýralegum ferðum en líka skemmtilegum borgarferðum. Ljósmynd/Aðsend

Fór í vinkonuferð til Balí

Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur þú farið í og af hverju?

„Það er erfitt að velja á milli reisunnar og svo Balíferðarinnar og svo vill maður náttúrulega ekki skilja útundan fyrstu ferðalögin með strákunum mínum því það eru svo dýrmætar minningar. En við skulum taka fyrir Balíferðina.

„Mig óraði ekki beint fyrir því að fara með stuttum fyrirvara til Balí í fyrra en svo varð. Við fórum fjórar vinkonur saman en við vorum þá allar að spila í sama handboltaliðinu. Tvær þeirra höfðu farið áður og voru að plana að fara aftur og þá var bara alltof erfitt að slá ekki til og hoppa með. Ég var búin að mikla ferðalagið aðeins fyrir mér og hélt að þetta yrði alvöru hark, en þetta var ótrúlega þægilegt og vel skipulagt. Við tókum næturflug frá Zurich til Singapore og ég svaf bókstaflega í 10 af 12 klukkutímum. Við vorum náttúrulega klókar og bókuðum okkur sæti með meira fótapláss –mæli 100% með því.“

Balí var dásamlegur staður.

Balí var dásamlegur staður. Ljósmynd/Aðsend

„Við byrjuðum svo veisluna í Canggu þar sem við vorum með bókaða litla og sæta villu. En þetta var kannski ekki þessi dæmigerða Balíferð sem margir fara í. Við vorum mættar þarna til að hafa gaman, borða góðan mat, njóta menningarinnar og upplifa allt það skemmtilegasta sem eyjan hefur upp á að bjóða, ekki beint mættar til að stunda hugleiðslu, fara í jóga eða „finna sjálfar okkur“. Það var magnað að upplifa gestrisni hjá heimafólkinu sem vildi allt fyrir okkur gera, enda er ferðaþjónustan langstærsta tekjulindin þeirra. Það var ótrúlega ljúft að vera svona frjálsar og gera nákvæmlega það sem okkur langaði til.“

Andrea nýtur þess að ferðast með vinkonum sínum þegar synir hennar eru ekki með í för. Ljósmynd/Aðsend

„Næsta stopp var svo Ubud og loks Uluwatu. Við skoðuðum hrísgrjónaakra, fórum að synda með höfrungum í sjónum og nutum þess að vera á hóteli með dásamlegum garði og sundlaug. Ekki skemmdi fyrir að við höfum allar mjög gaman af því að skemmta okkur, svo við kíktum á stóra skemmtistaði eins og Savaya, sem maður upplifir klárlega ekki heima á Íslandi eða í nágrenni. Við lentum í ótrúlegustu ævintýrum, kynntumst skemmtilegu fólki og borðuðum endalaust af góðum mat. Þetta voru rúmlega tvær vikur af algjöru frelsi, hlátri og gleði. Mæli svo mikið með,“ segir Andrea. 

Andrea skoðaði meðal annars hrísgrónakra á Balí.

Andrea skoðaði meðal annars hrísgrónakra á Balí. Ljósmynd/Aðsend

Af öllum stöðum í heiminum hefur Andrea aldrei fengið betri mat en á Balí. 

„Ég er ennþá að hugsa um veitingastaðina þar og hvað maturinn var svakalega vandaður. Ég gæti bókstaflega farið aftur bara til þess að borða. Allt hráefnið var í hæsta gæðaflokki og það skemmdi svo sannarlega ekki fyrir hvað þetta var galið ódýrt, við vorum hreinlega að missa okkur í hvert skipti sem við pöntuðum. Það var oft mjög fyndið að sjá svipinn á þjónunum þegar þeir mættu við borðið með allan þennan mat handa fjórum skvísum. En þeir áttuðu sig fljótt á því að við vorum ekkert að grínast enda fjórar handboltakonur sem geta heldur betur borðað. En hvort sem það var á litlum brönsstað í Canggu eða fínum veitingastað á kvöldin, þá var hver einasta máltíð geggjuð og við urðum aldrei fyrir vonbrigðum.“

Andrea er enn að hugsa um matinn sem hún fékk á Balí. Ljósmynd/Aðsend

Velur þægindi með lítil börn

Breyttust ferðalögin á einhvern hátt eftir að þú varðst móðir?

„Já, þau gerðu það alveg. Þá var farið í klassísku Torrevieja- og Teneferðirnar sem er að mörgu leiti þægilegt með lítil börn. Það er bara eitthvað við það að vera í þægindarammanum þegar maður er að ferðast með þrjá litla gutta, fyrir mitt leiti er betra að vita nákvæmlega hvað maður er að fara út í. En svo held ég að þetta eigi eftir að breytast mikið þegar þeir verða eldri. Mig langar svo að upplifa heiminn með þeim, skoða eitthvað af þessu óklassíska, leyfa þeim að uppgötva nýja staði og fá að upplifa heiminn í gegnum þeirra augu.“

Það er mikil vinna að ferðast með þrjá litla gaura og þá er gott að velja staði eins og Spán og Tenerife. Ljósmynd/Aðsend

Hvert dreymir þig um að fara?

„Það er tvennt í þessu. Í fyrsta lagi Ítalía. Ég skil hreinlega ekki í sjálfri mér að vera ekki búin að fara þangað á fullorðinsárunum. Ég fór þangað sem barn, en það telur varla. Það er klárlega efst á listanum að fara þangað í frí með strákana mína og fá að njóta matarmenningarinnar og náttúruperla sem Ítalía hefur upp á að bjóða. En svo er það ævintýraþráin sem kallar líka. Ég hef ennþá bara séð lítið brot af heiminum og mig langar að upplifa svo miklu meira. Ástralía, Japan eða jafnvel alvöru Suður-Ameríkureisa er eitthvað sem verður klárlega látið verða af á fertugsaldrinum. Svo veit maður aldrei hvað bankar upp á og ég alltaf opin fyrir skemmtilegum hugmyndum,“ segir Andrea. 

Andrea hefur verið dugleg að láta drauma sína rætast og ferðast á fjarlægar slóðir. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Ferðalög」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读