Fór fyrst til Taílands 13 ára

Emilía Halldórsdóttir elskar að ferðast. Henni finnst skemmtilegast að komast í sól og búðir sem selja notaðar gersemar. Ljósmynd/Aðsend

Emilía Halldórsdóttir viðskiptafræðinemi dreymir um að fara til fimm heimsálfa og koma til 20 prósenta landa heims. Hún náði sér í smáforritið Been til þess að fylgjast með hvernig gengur að ferðast um heiminn. 

„Mér hefur alltaf fundist mjög spennandi að ferðast en það var erfitt að koma ferðalögum fyrir þegar ég æfði fótbolta. Mér finnst ég samt vera bæta það ágætlega upp síðastliðin ár. Ég hef líka reynt að vera sem frjálsust til að ferðast og valdi til dæmis fjarnám, fjarvinnu eða vinnur sem eru sveigjanlegri en aðrar,“ segir Emilía um ferðaáhugann. 

„Ég setti mér líka markmið fyrir tveimur árum þegar ég náði mér í appið Been. Þar setur maður inn öll lönd sem maður hefur komið til og þar sá ég að ég hef komið til 9% landa heims, markmiðið varð þá að ná 20% landa og heimsækja fimm heimsálfur í gegnum ævina.“

Hér má sjá Emilíu í Mílanó. Stundum hefur hún verið í farnámi og fjarvinnu og þanni getur hún ferðast meira. Ljósmynd/Aðsend

Elskar sól og góðar búðir

Hvernig ferðalögum ertu hrifin af?

„Ég elska eiginlega allar týpur af ferðalögum en sólarlandaferðir verða alltaf í mestu uppháhaldi því við fáum ekki beint mikið af sól hér heima. Mér finnst líka mjög gaman að fara í smá ævintýri, kynnast menningu annarra landa og upplifa nýja hluti.

Svo er vert að nefna að ég er svolítið kaupsjúk og elska góðan markað eða vintage- ogsecondhand búðir, þannig borgir eins og París, Mílanó, Berlín og Barcelona heilla mig sérstaklega mikið. Góðar búðir, falleg borg og sól er eiginlega fullkomin blanda.“

Sólarlandaferðir eru í uppáhaldi.

Sólarlandaferðir eru í uppáhaldi. Ljósmynd/Aðsend

Áttu uppáhaldsborg í Evrópu og af hverju?

„Það er mjög erfitt að velja uppáhaldsborg en ætli valið standi ekki á milli Köben og París. Ég hef komið til beggja borga nokkrum sinnum en held að París hafi vinninginn eins og er. Ég heimsótti vinkonu mína þangað rétt fyrir sumarið og varð eiginlega enn ástfangnari af borginni í þeirri ferð. „Thethriftgods“ voru líka með mér í liði í þeirri ferð þannig hún er sérstaklega eftirminnileg út af því.“

Emilía í París nýbúin að grafa upp gamalt notað góss.

Emilía í París nýbúin að grafa upp gamalt notað góss. Ljósmynd/Aðsend

Taíland stendur upp úr

Þegar Emilía er spurð hvaða staður í heiminum fyrir utan Evrópu stendur upp úr verður Taíland fyrir valinu.

„Ég verð að segja bæirnir og eyjurnar á Taílandi. Það er eitthvað svo rosalega heillandi við landið, fólkið, stemninguna og náttúruna. Mér leið bara eins og ég væri í öðrum heimi á besta hátt. Ég mæli með fyrir alla að heimsækja Taíland allavega einu sinni.“

Emilía í Taílandi. Seinni ferðin til Taílands er í miklu uppáhaldi en þá lenti Emilía í allskonar ævintýrum. Ljósmynd/Aðsend

Hvert er eftirminnilegasta ferðalagið sem þú hefur farið í?

„100% seinni Taílandsferðin. Ég fór fyrst þangað 13 ára og fannst landið æðislegt en langaði alltaf að fara aftur þegar ég yrði eldri. Ég lét loksins verða af því í fyrra og stóðst ferðin svo sannarlega undir væntingum.

Það sem mér finnst mest heillandi við Taílandi er hvað allt er ólíkt því sem maður þekkir. Ég horfðist líka í augu við nokkra af mínum stærsta ótta. Ég er frekar hrædd við villt dýr, sjóinn og hæðir og fórum við meðal annars að snorkla, ízipline og gistum í opnu tréhúsi inni í miðjum frumskógi. Taíland var því hin fullkomna blandan af ævintýrum og afslöppun.“

Fólkið og náttúran í Taílandi heillar Emilíu.

Fólkið og náttúran í Taílandi heillar Emilíu. Ljósmynd/Aðsend

Noregur kom á óvart

Er einhver staður sem þú hefur komið til sem hefur komið þér á óvart?

„Ætli ég verði ekki að segja Noreg. Ég og kærastinn minn bjuggum íKongsvinger í tæpt ár þegar hann spilaði þar og svo býr pabbi minn þar líka. Ég bjóst ekki við að elska það eins og ég gerði því Kongsvinger er svolítið krummaskuð en lífið þar var eitthvað svo rólegt og ljúft.“

Ljúfa lífið í Noregi.

Ljúfa lífið í Noregi. Ljósmynd/Aðsend

En er einhver staður sem hefur valdið vonbrigðum?

„Ég veit ekki hvort ég myndi segja beint vonbrigði en Arizona í Bandaríkjunum kom fyrst upp í hugann. Ég fékk að fara með kærastanum mínum í æfingaferð þegar hann spilaði í Montreal og endaði svolítið föst á hótelinu sem var út í rassgati á meðan hann var á æfingum megnið af deginum. Það er samt klárlega hægt að gera helling af skemmtilegum hlutum þar ef aðstæðurnar hefðu verið öðruvísi en ég kvarta alls ekki yfir fríi á sundlaugarbakkanum.“

Langar til Japan

Hvert dreymir þig um að fara?

„Mig dreymir um að fara til Japans. Mér finnst menningin og allt sem landið hefur upp á bjóða svo heillandi og ég held ég myndi missa mig í búðunum þar. Er klárlega að fara láta þessa ferð verða að veruleika á næstu árum.“

Emilía er alltaf með hugann við næstu ferð.

Emilía er alltaf með hugann við næstu ferð. Ljósmynd/Aðsend

Ertu með einhver ferðalög plönuðu í vetur?

„Já, við mæðgurnar ætlum að skella okkur til Berlínar fyrir jól til að skoða brúðarkjóla fyrir systir mína og fagna útskriftinni hennar meðal annars. Svo er geggjað að kaupa notuð föt í Berlín þannig að ég hlakka mjög til að fara heim með of þunga tösku.

Svo er aldrei að vita nema ég verðlauni sjálfa mig með einhverri ferð í lok árs þegar ég klára viðskiptafræðigráðuna mína. Er mjög dugleg að finna góðar afsakanir fyrir að bóka ferðir. Mér finnst líka svo mikilvægt að eiga einhverja ferð planaða til að hafa eitthvað til að hlakka til, það er það sem heldur manni gangandi í dimma hversdagleikanum hér heima,“ segir Emilía að lokum. 

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab