„Þetta er eitthvað sem allir ættu að fá að upplifa“

Steinunn Silja Elvarsdóttir er rithöfundur, námsmaður og ferðalangur. Hér er hún í Indónesíu þar sem hún ferðaðist um í fyrra. Ljósmynd/Aðsend

Líf hinnar 24 ára Steinunnar Silju Elvarsdóttur hefur breyst mikið á þessu ári en í vor hlotnaðist henni tækifæri til að flytja til Bandaríkjanna og fara í nám.

Í fyrstu fannst henni það fráleit hugmynd en í dag býr hún með kærasta sínum í Seattle, stærstu og fjölmennustu borg Washington-fylkis, þar sem þau stunda bæði nám.

Hún segist kunna vel við sig í borginni og er spennt að fá að upplifa allar árstíðirnar þar en í fyrra tók Steinunn sér árspásu frá námi og fór í ferðalag.

„Ég er í mastersnámi í verkfræði við Háskólann í Washington. Ég lauk BS-gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og langaði að víkka þekkingu mína og læra meira um stjórnun og kerfis- og rekstrarverkfræði. Í frítíma mínum hef ég mjög gaman af útiveru og hreyfingu og á Íslandi elska ég að fara í göngur með hundinn minn.  Ég hef líka sterka skapandi hlið og hef sérstaklega gaman af því að skrifa,“ segir Steinunn Silja en nýlega gaf hún út sína fyrstu bók sem heitir Sumarstormur.

Hún hefur ekki setið auðum höndum síðastliðna mánuði og er algjör dugnaðarforkur. Ljósmynd/Aðsend

Stukku á tækifærið

Hvernig gekk að flytja?

„Ég kom hingað í lok september og var ótrúlega spennt fyrir flutningunum. Satt að segja bjóst ég við að vera stressuð, en það gerðist aldrei. Ég var bara virkilega spennt fyrir því að prófa eitthvað nýtt. Það er samt skrýtin tilfinning að vera allt í einu komin til annars lands og kalla það heimili.

Það hefur líka verið erfitt að vera hér úti á sama tíma og bókin mín kom út á Íslandi, því ég missi svolítið af því að vera heima á meðan en ég kem aðeins heim bráðum til að sinna því,“ segir hún.

Hvernig var undirbúningurinn fyrir flutningana?

„Helsti undirbúningurinn snerist um öll gögnin sem ég þurfti fyrir vegabréfsáritunina og umsóknarferlið í kringum hana, sem var frekar tímafrekt. Svo þurfti ég að finna út hvernig ég gæti pakkað lífi mínu niður í tvær töskur. Það var erfitt, sérstaklega af því að ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því hvernig hitastigið í Seattle væri yfir árið. Það var því snúið að velja föt og ég fékk mikinn valkvíða.

Ég sótti ekki um námið fyrr en í mars á þessu ári svo að þetta var allt frekar mikil skyndiákvörðun. Mig hafði alltaf langað í nám erlendis en bjóst ekki endilega við því að fara til Bandaríkjanna, aðallega vegna kostnaðar og vandamála í kringum vegabréfsáritun. Samt var það draumurinn minn þegar ég var yngri að flytja til Bandaríkjanna og fara í skóla þar.

Svo frétti kærastinn minn af styrk sem við gátum sótt um, fyrir þennan skóla í Seattle. Hann ákvað að sækja um og hvatti mig til að gera það sama. Mér fannst það galin hugmynd, þar sem nám í Bandaríkjunum er svo dýrt, en svo fékk hann styrkinn og þá ákvað ég að slá til. Svarið lét bíða eftir sér lengur en til stóð, því námið mitt er kennt í fyrsta skipti í ár og mikil óvissa ríkti um það hvernig það yrði sett upp. Í maí fékk ég þær fréttir að ég hefði komist inn og þá var ekki aftur snúið!“

Hún segir haustið í Seattle hafa verið fallegt og litríkt en milt. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig kanntu við þig í Seattle?

„Hingað til elska ég þetta, ég hafði aldrei komið hingað áður. Það eina sem ég vissi í raun um borgina var það sem ég hafði séð í Grey’s Anatomy, sem var reyndar ekki einu sinni tekið upp hér.

Ég vissi af ferjunum og auðvitað að þetta væri rigningarborg. Við Íslendingar erum vanir rigningu og miklu verra veðri en ég hef upplifað hér. Síðan ég kom hefur bókstaflega bara rignt í nokkra daga.

Mér finnst fólkið hérna líka vera mjög skemmtilegt og viljugt til að spjalla,“ segir hún.

Hvernig gekk að finna heimili?

„Það gekk ágætlega og úrvalið var nokkuð gott. Við vorum þó frekar sein að negla niður íbúð, því flestir gátu ekki sagt til um hvaða íbúðir yrðu lausar fyrr en fjórum til sex vikum áður en leigan átti að hefjast.

Hér er algengt að fyrirtæki eigi heilu byggingarnar og leigi íbúðirnar út, og uppsagnarfresturinn sé stuttur en við vorum ótrúlega heppin með íbúðina sem við enduðum í. Hún er rúmgóð og hentug og í göngufjarlægð frá skólanum.“

Síðustu mánuði hefur Steinunn Silja verið í skólanum á virkum dögum og skoðað sig um í Seattle um helgar. Ljósmynd/Aðsend

Alveg eins og í bíómyndunum

Steinunn segist reyna að skoða sig sem mest um í frítíma sínum og er hrifin af almenningssamgöngunum sem eru betri en vaninn er í Bandaríkjunum.

„Borgin er mjög falleg og það er sérstaklega gaman að fara á Pike Place-markaðinn. Þar getur maður týnt sér tímunum saman í básunum og útsýnið þar er ótrúlega fallegt. Svo erum við Máni auðvitað búin að fara í ferjuna sem var mögnuð upplifun, að sjá borgina frá þessu sjónarhorni bæði í dagsbirtu og myrkri var æðislegt.

Ég hef líka haft gaman af því að fara til nærliggjandi bæja og prófa alls kyns ameríska veitingastaði. Ég verð að viðurkenna að ég var mjög spennt fyrir því að smakka allan þennan týpíska ameríska mat og ég er enn að vinna í því! Svo er gaman að fara í þessar búðir eins og Target og Walmart, vöruúrvalið er gríðarlegt og hér fæst alls konar sem ekki er hægt að fá í Evrópu. Það er gaman að prófa það sem er vinsælt hérna, ég gæti verið endalaust lengi inni í þessum búðum.“

Hún er dugleg að ýta sér út fyrir þægindarammann.

Hún er dugleg að ýta sér út fyrir þægindarammann. Ljósmynd/Aðsend

Hvernig er námið?

„Hingað til er það mjög skemmtilegt og áhugavert og mér líður vel. Þetta er eins árs meistaranám, sem var líka draumur hjá mér, og áfangarnir eru virkilega spennandi. Við lærum margt sem lærum margt sem nýtist beint á vinnumarkaðnum. Námið er praktískt og áherslan er á verkefni og hópavinnu frekar en próf, sem hentar mér mjög vel,“ segir hún en það voru fáir nemendur teknir inn og er hópurinn því þéttur.

„Kennararnir hafa góðan tíma fyrir hvern og einn nemanda. Mér finnst líka gaman að vinna með fólki frá ólíkum löndum með alls konar bakgrunn.“

Steinunn Silja segir að það séu margs konar fríðindi sem nemendurnir fái aðgang að sem tengjast heilsu.

„Við höfum góðan aðgang að líkamsrækt, sundlaug, strandblaki, badminton, fótbolta og fleiru, svo er meira að segja klifurveggur! Það er líka hægt að fá aðgang að kajak sem ég er spennt að nýta mér næsta sumar.

Ég fór í haust á leik í amerískum fótbolta, það var frábær upplifun að sjá klappstýrurnar, lúðrasveitina og allan mannfjöldann sem kom að þessu. Svo finnst mér gaman að ganga um hverfin þar sem bræðrafélögin og systrafélögin búa. Húsin eru rosaleg og þetta er alveg eins og maður hefur séð í bíómyndunum,“ segir hún.

Kærustuparið Steinunn Silja og Máni eru gott teymi og hafa verið saman í nokkur ár. Ljósmynd/Aðsend

Fjallganga og strákofar

Sumarið 2025 fóru Steinunn og Máni til Asíu í framandi ferðalag sem þau hafði lengi dreymt um.

„Við létum verða af þessu í fyrra og þetta var algjör draumur og ég myndi ráðleggja öllum að prófa. Við fórum á mjög ólíka staði: vinsæla ferðamannastaði og fallegar náttúruperlur, en líka mjög afskekkta staði þar sem lítið var um ferðamenn. Það síðarnefnda er sérstaklega eftirminnilegt.

Menningarmunurinn var smá sjokkerandi en það var líka þroskandi og skemmtilegt. Við byrjuðum í Dúbaí, þar sem við fórum í safarí í eyðimörkinni og skoðuðum markaði. Þaðan lá leiðin til Taílands; til Bangkok, í Khao Sok-þjóðgarðinn og til Koh Samui-eyju. Þar fengum við að kynnast mörgu af því sem Taíland hefur upp á að bjóða.

Næst fórum við til Indónesíu og byrjuðum á Balí. Það var æði en rosalega mikið af fólki og ferðamönnum. Frá Balí fór Máni heim þar sem hann er í handbolta og fékk ekki svo langt frí. En ég var svo heppin að foreldrar mínir og bróðir minn tóku við keflinu á Balí og ferðuðust með mér seinni hluta ferðalagsins.

Næst var förinni heitið til Nusa Penida, eyju rétt hjá, þar sem var mun rólegra og margir fallegir staðir að skoða. Eftir það tóku við meiri ævintýri á afskekktari stöðum austar í Indónesíu. Þar borðuðum við á fullt af stöðum eins og þeim sem ég hafði forðast í byrjun ferðarinnar af ótta við matareitrun en það var einfaldlega ekkert annað í boði,“ segir hún.

Það var margt nýtt að sjá í Asíu, svo sem hitastig, matur, gróður, dýralíf og menning. Samsett mynd

„Við keyrðum um eyjuna Flores og gistum í frumbyggjaþorpi sem var ótrúlegt. Svo klifum við hæsta fjall eyjarinnar í skelfilegu veðri. Allir hinir gönguhóparnir hættu við en leiðsögumaðurinn okkar minntist ekki einu orði á það. Við stauluðumst þarna upp, alls ekki klædd eftir veðri. Við hlæjum að þessu í dag, þó að við höfum aldeilis ekki gert það á meðan á því stóð.“

Eftir þessar raunir enduðu þau tíma sinn í Indónesíu á lítilli eyju. „Við fórum á Le Pirate-eyjuna en þar eru bara strákofar. Það var magnað að snorkla í kringum eyjuna, svo mikið var af kóral. Næst fórum við í fimm daga bátsferð og fengum að synda með hvalhákörlum. Bæði eyjan og bátsferðin voru eins og að vera í paradís. Á heimleiðinni stoppuðum við í Singapúr og þar með lauk þessu ævintýri.

Ég vona innilega að ég fái tækifæri til að ferðast aftur á fleiri framandi staði.“

Hér er Steinunn að synda með hvalhákarli en það er hægt að gera það á örfáum stöðum í heiminum. Ljósmynd/Aðsend

Steinunn horfir björtum augum á framtíðina og vill koma áfram boðskapnum sem er í bókinni hennar.

„Ég myndi hvetja alla til að ferðast og prófa að búa erlendis. Það er svo dýrmæt lífsreynsla og sýnir manni hvað heimurinn hefur upp á að bjóða. Ég deili upplifun minni héðan frá Seattle á TikTok og Instagram undir nafninu steinunnsilja. Þar sýni ég frá lífinu og náminu hér úti og segi líka frá bókinni minni og andlegri heilsu.

Bókin Sumarstormur fjallar um Allý, sautján ára stelpu sem er í uppreisn gegn fjölskyldu sinni og lífinu sjálfu. Hún er send í sveit yfir sumarið, sem henni finnst bæði óþarfi og ósanngjarnt, en dvölin breytir lífi hennar til frambúðar. Þetta er saga fyrir ungmenni um ást, missi og fyrirgefningu og hún fjallar líka um andlega heilsu og flókin fjölskyldutengsl.

Mig langaði að skrifa bók sem ungt fólk getur speglað sig í og sem sýnir að það er í lagi að leita sér hjálpar og að maður er ekki einn,“ segir Steinunn Silja að lokum.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab