Ferðamenn brutu helgigrip og hlupu á brott

Mennirnir tveir á upptöku úr eftirlitsmyndavél í gamla bænum í Vilníus 11. nóvember. Annar þeirra heldur á Kristsstyttunni skömmu áður en hún brotnar. Samsett mynd/Facebook

Tveir menn eru grunaðir um að hafa tekið gulllitaða Kristsstyttu af trékrossi í kirkjugarði í gamla bænum í Vilníus í Litáen. Á upptöku úr eftirlitsmyndavél sést styttan brotna á steinlagðri götu áður en mennirnir hlaupa á brott.

Samkvæmt lögreglunni í Vilníus hékk styttan á krossi í garði kirkjunnar við Dominikonų-götu. Atvikið átti sér stað um klukkan níu að kvöldi þann 11. nóvember.

Á upptökunni sést annar mannanna hlæja og halda styttunni á lofti á meðan hinn tekur félaga sinn upp á síma. Sá sem heldur á styttunni reikar um götuna þar til báðir handleggir hennar brotna af. Við það fellur styttan í götuna og brotnar í þúsund mola.

Mennirnir hlaupa þá á brott og skilja brotin eftir á götunni. Talið er að mennirnir séu breskir ferðamenn en lögregla hefur ekki staðfest þjóðerni þeirra.

Bað fyrir mönnunum

Elijas Anatolijus Markauskas, prestur kirkjunnar, birti upptökuna á Facebook og óskaði eftir aðstoð við að bera kennsl á mennina.

„Ég bað Drottin að hjálpa mér að láta ekki undan hatrinu,“ skrifaði presturinn. Hann sagðist einnig hafa beðið þess að mennirnir áttuðu sig á því sem þeir hefðu gert og fengju að kynnast fyrirgefningu Krists.

Brotunum úr styttunni hefur verið komið fyrir undir krossinum þar sem hún hékk og blóm lögð í kringum þau.

Fyrir fjórum dögum tókst að bera kennsl á annan mannanna. Lögreglan hefur síðan yfirheyrt hann vegna gruns um að hafa brotið styttuna.

Independent

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab