22 bestu jólailmirnir fyrir hann
Þarf maðurinn ekki að ilma vel?
Næstu vikur verður nóg um að vera og allir þurfa að passa upp á að ilma vel. Ilmurinn er hluti af þínum persónulega stíl og skapar ákveðna stemningu. Hvort sem menn heillast af ferskum, krydduðum eða djúpum viðartónum þá er úrvalið í verslunum einstaklega fjölbreytt.
Góður ilmur er einnig frábær gjöf fyrir föður, bróður, maka eða vin og þú slærð í gegn með rakspírunum á þessari síðu.
This is Him! Undressed frá Zadig & Voltaire er ferskur og kryddaður karlilmur með hlýjum viðartónum. 50 ml kosta 13.999 kr.
Ombré Leather er metsöluilmur frá Tom Ford og ekki að ástæðulausu. Þetta er æðislegur ilmur þar sem kardimommur, jasmín, svart leður, patchouli-blóm, hvítur mosi og amberviður koma saman í einum ilmi. 50 ml kosta 25.499 kr.
Bleu Noir For Him frá Narciso Rodriguez er hlýr og fágaður ilmur. Svartur pipar, sedrusviður og amberviður ljá honum hlýju. 100 ml kosta 17.499 kr.
This is Him! Red Hot er Zadig & Voltaire er hlýr og seiðandi herrailmur sem samanstendur af ávaxtatónum, leðri og viðartónum. Rauð epli ljá ilminum ferskleika og hindber bæta við sætum keim. Fullkominn kvöldilmur fyrir stefnumótið. 50 ml kosta 14.999 kr
Luna Rossa Black frá Prada er mjúkur og fágaður. Þennan kaupirðu aftur og aftur. 50 ml kosta 16.499 kr
Hero Parfum Intense frá Burberry er nýjasti ilmurinn í Hero-fjölskyldunni. Ilmur inn er kraftmikill og með sterkum leðurkeim. 50 ml kosta 19.999 kr.
Naked Dance frá Oddity er fágaður og seiðandi ilmur þar sem appelsínu blóm, rósir og grænt te blandast hlýjum viðartónum, reykelsi og musk. Einstakur ilmur fyrir öll kyn sem minnir á sólkyssta húð og notalega nánd. Svo er glasið stórkostlegt. Fæst Bleu de Chanel L'Exclusif er í Mikado og kostar 35.990 kr.
Authentic Night frá Abercrombie & Fitch er blanda af stökkum eplum, lavenderblómi og leðri. 50 ml kosta 9.499 kr.
Phoenician Leather frá Heeley er djúpur og seiðandi ilmur þar sem reykelsi, leður og sandelviður blandast sætum tónum af döðlum, hunangi og amber við. Fæst í Stef ánsbúð og kostar 35.990 kr.
Musk Oil No. 6 Eau de Toilette frá Gosh er seiðandi og kyn þokkafullur ilmur fyrir öll kyn. Viðar kenndir tónar, fín gerðar blómanótur og mjúkur musk blandast saman og undirstrika náttúrulegan líkamsilm. Hann kostar 2.199 kr.
Born in Roma frá Valentino sækir inn blástur til ítölsku borgarinnar Rómar. Viður, kryddað engifer og steinefnasalt skapa ferskan og heillandi ilm. 50 ml kosta 14.499 kr.
Vetiver 46 frá Le Labo er djúpur, dularfullur og fágaður ilmur þar sem kryddaðar nótur af pipar, sedru sviði og reykelsi mætast. Seiðandi og kraftmikill ilm ur fyrir öll kyn sem skilur eftir sig sterkan svip. Fæst í Mikado og kostar 35.990 kr.
Bleu de Chanel L'Exclusif er fágaður og kraftmikill herrailmur sem sameinar djúpa viðartóna, hlýju og seiðandi karakter. Sér stök útgáfa frá Chanel. 60 ml kosta 30.499 kr.
Bee Oud er djúpur og heillandi ilmur þar sem sætir hunangstónar mæta ríkulegum Oud-við. Ilmurinn er fyrir öll kyn, er kraft mikill og fullkominn fyrir þá sem heillast af óvenjulegum ilmi. Fæst í Skincarelab, 100 ml kosta 26.900 kr.
No. 54 frá Fischer sundi er kraftmikill og óvenjulegur ilmur sem sækir innblástur í verkstæði föður systkinanna á bak við merkið. Ferskir sítrustónar, fjallafura og krydd blandast djúpum tónum af leðri, sedrusviði og vetiver. Reyktur og viðarkenndur ilmur sem vekur minningar um íslenska náttúru og gamalt handverk. Fæst í Fischersundi og kostar 28.400 kr.
Phantom Parfum frá Rabanne er kraftmikill og seiðandi herrailmur sem sameinar ferskan lavender, hlýja vanillu og djúpa viðartóna. 50 ml kosta 16.999 kr
Burning Barbershop frá D.S. & Durga er óvenjulegur og heillandi ilmur sem sækir innblástur í rakarastofu sem varð eldi að bráð árið 1891. Ferskir tónar af myntu, límónu og lavender blandast rósum, vanillu og reyktum undirtónum. Fæst í Aftur og kostar 32.900 kr.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗





















