Pallíetturnar eru í algleymingi núna.
Samsett mynd
Ef það er eitthvað sem þig vantar núna þá er það pallíettuflík. Þú verður að skína skært í jólaboðunum og öllu því helsta sem er fram undan.
Hvort sem það eru buxur, toppur eða kjóll þá ferðu í gott skap við að klæðast einhverju glansandi og skrautlegu.
Hér fyrir neðan eru nokkrar flottar pallíettuflíkur sem þú getur átt í skápnum og notað á næstunni og um ókomin ár.
Svartur pallíettukjóll frá Zöru sem kostar 11.995 kr.
Toppur frá Yeoman sem kostar 39.900 kr.
Pallíettutoppur frá Étoile Isabel Marant, fæst í Mathildu og kostar 64.990 kr.
Pallíettukjóll með blómum frá Mango, fæst á vefsíðu Mango og kostar 54.500 kr.
Svartur pallíettutoppur frá Mos Mosh, fæst í Hjá Hrafnhildi og kostar 21.980 kr.
Pallíettupils frá Second Female, fæst í FOU22 og kostar 19.900 kr.
Toppur frá Paloma Wool, fæst í Andrá og kostar 43.990 kr.
Pallíettuskreyttar gallabuxur frá Zöru sem kosta 11.995 kr.
Peysa með pallíettum frá Mango sem kostar 5.999 samkvæmt vefsíðu Mango.
Alvöru gellukjóll frá Polo Ralph Lauren, fæst í Mathildu og kostar 79.990 kr.