Fimm bestu hármaskarnir

Hármaskar eru nauðsynlegir yfir allt árið en sérstaklega yfir vetrartímann þegar loftið er þurrt og kalt.

Það er nauðsynlegt að eiga góðan hármaska til að nota þegar lífga þarf hárið við. Þegar kólnar í veðri er þetta mjög mikilvægt því þurrt loftslag getur reynst erfitt fyrir sumt hár. Þú munt sjá mun þegar þú notar hármaska reglulega.

Immortelle Vitality Replumping Mask frá L'Occitane

Hármaski sem vinnur á þremur lykilþáttum heilbrigðs hárs. Það styrkir hárið, gefur því fyllingu og endurvekur gljáa þess strax eftir fyrstu notkun. Hármaskinn er umvefjandi, styrkir og fyllir upp í hártrefjar ásamt því að ná glansinum til baka. Svo er lyktin dásamleg. 

Fæst í L'Occitane og kostar 7.350 kr. 

Immortelle Vitalité frá L'Occitane.

Immortelle Vitalité frá L'Occitane.

Frizz Ease Miraculous-djúpnæring frá John Frieda

Næring sem mettar hárið af raka og lagfærir það, auk þess að gefa hárinu aukna mýkt og gljáa. Þessi vara er í miklu uppáhaldi hjá mörgum. Formúlan smýgur djúpt inn í hárið til að næra það eftir skemmdir af völdum hitamótunar og litameðferðar. Með reglulegri notkun umbreytist þurrt og viðkvæmt hár í silkimjúkt, glansandi hár sem verður ekki úfið.

Næringin kostar 2.999 kr. 

Frizz Ease Miraculous frá John Frieda.

Frizz Ease Miraculous frá John Frieda.

Innsæi-hárnæring frá ChitoCare

Þessi hárnæring er ekki beint hármaski sem þú skilur eftir í hárinu en virkni hennar er mjög góð og jafnvel betri en margir hármaskar. Næringin er silkimjúk og veitir djúpan raka, bætir áferð og nærir hárið án þess að þyngja það. Formúlan inniheldur kítósan, kollagen og kísil sem eru náttúruleg hráefni úr hafinu sem styrkja hárið, viðhalda mýkt og styðja við náttúrulegt viðgerðarferli þess.

Næringin kostar 7.700 kr.

Innsæi Revive-hárnæring frá ChitoCare.

Innsæi Revive-hárnæring frá ChitoCare.

Invati-hármaski frá Aveda

Maski fyrir hár og hársvörð sem þykkir, styrkir og færir fíngerðu hári raka. Maskinn verndar hárið við hitamótun og dregur úr því að hárið verði rafmagnað. Berið í hársvörðinn og látið bíða í 2-5 mínútur, skolið svo vel úr hárinu. 

Hármaskinn kostar 6.899 kr. 

Invati-hármaski frá Aveda.

Invati-hármaski frá Aveda.

Nutrient Shinebath-hármaski frá goop beauty

Næringarríkur og einstaklega rakagefandi hármaski sem bindur raka í hárinu, fyrir glans án þess að hárið úfni. Maskinn hjálpar jafnframt til við að endurbyggja þurrt, líflaust eða efnameðhöndlað hár með tímanum. 

Fæst í Eliru og kostar 9.990 kr.

Hármaski frá Goop Beauty.

Hármaski frá Goop Beauty.

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅