23 dásamlegir ilmir fyrir hana
Langar þig í nýtt ilmvatn?
Það er auðvitað best að ilma vel allan ársins hring en það er sérstaklega þörf á því yfir hátíðirnar. Á veturna grípa margir í þyngri ilm í takt við veðráttuna á meðan aðrir vilja stanslaust sumar.
Það hefur færst í vöxt að gefa sjálfri sér gjöf á þessum árstíma og þá kemur nýtt ilmvatn sterkt inn. Flestir eru vanafastir í þessum efnum og kaupa sama ilminn ár eftir ár, en er ekki kominn tími til að breyta til?
Coco Mademoiselle, Crush Absolu frá Chanel. Ilmurinn er nýr frá hátískuhúsinu og er útgáfa af hinum klassíska ilmi. Greipaldin, rósir, jasmín og vanilla einkenna ilminn. 50 ML kosta 22.999 kr.
This is her! Red Hot frá Zadig & Voltaire 30 ml kosta 11.499 kr. Djarfur og seiðandi ilmur með rokklegu yfirbragði. Hlýir sætir og kryddaðir tónar skapa ávanabindandi ilm fyrir þær sem vilja vekja athygli.
Another 13 frá Le Labo fæst í Mikado og kosta 50 ML 35.990 kr. Það er fjárfesting í ilmunum frá Le Labo og margir verða helteknir af þessum ilmi. Musk og mildir viðartónar skapa einstakan, ferskan og seiðandi ilm sem fellur einstaklega vel að húðinni.
Amande Créme Brulée hár- og líkamssprey frá L'Occitane. 100 ml kosta 5.850 kr. Ilmurinn er ljúfur og freistandi og minnir á gómsætan eftirrétt. Sætar möndlur og rjómakenndir tónar umvefja húð og hár.
Million Red frá Paco Rabanne 30 ml kosta 15.999 kr. Kraftmikill og seiðandi ilmur fyrir þá sem eru mjög sjálfsöruggir, eða vilja vera það. Kryddaðir og viðarkenndir tónar skapa hlýjan og heillandi ilm sem fangar athyglina.
Mezcal Chocolate frá French Cowboy Fæst í Nolu og kosta 100 ml 19.990 kr. Þetta er spennandi og óvenjulegur ilmur fyrir þau sem vilja skera sig úr.
For her frá Narciso Rodriguez. Fáguð og fersk útgáfa af klassískum ilmi merkisins. Hann var upphaflega gerður í minningu Carolyn Bessette-Kennedy og hennar tímalausa glæsileika. Sameinar jasmín, musk, hlýjan sedrus við og vanillu. 50 ml kosta 20.699 kr.
La Favorite frá Jean Paul Gaultier. 30 ml kosta 15.699 kr. Fágaður og kvenlegur ilmur sem sameinar mýkt og seiðandi, djúpan ilm. Ilmurinn hefur glæsilegan og rómantískan blæ og hentar vel þeim sem vilja áberandi ilm án þess að hann verði yfirþyrmandi.
L'Heure Bleue frá Guerlain. L'Heure Bleue er sígildur ilmur frá Guerlain og kom fyrst á markað 1912. Ilmurinn er púðurkenndur, blómlegur og örlítið kryddaður með nostalgískum blæ. Þetta er fágaður ilmur með mikla sögu sem hefur staðist tímans tönn og er klassískur. 50 ml kosta 20.390 kr.
Olympea frá Rabanne. Ilmvötnin frá Rabanne eiga sína aðdáendur. Olympea er ilmur af saltri vanillu, grænni tangerínu, jasmín og engiferblómi. Ilmurinn er seiðandi og er nánast ávanabindandi. Flaskan kostar 16.999 kr.
Scandal Elixir frá Jean Paul Gaultier. Þetta er eðalilmur, seiðandi og ávaxtakenndur amberilmur sem hrífur flesta. Það er hægt að lýsa ilminum sem kynþokkafullnum þar sem safarík brómber og patsjúlí vekja skynfærin. 50 ml kosta 18.499 kr.
Ceramic frá Andreu Maack. Hrein og einföld samsetning en þó sterkur karakter. Ceramic er ilmurinn af hvítum leir og innblásinn af jarðhitasvæðum Íslands. Ferskleiki og steinefnastemning gæða húðina nýju lífi. 15 ml kosta12.490 kr. Fæst m. a. í Eliru.
Galbee is Woody frá Galbee Paris. Fágaður ilmur fyrir öllk yn sem sameinar ferskleika og hlýju á heillandi hátt. Mynta og appelsína mæta sedrusviði, hvítum musk, amberblómi og vanillu. Útkoman er djúpur, seiðandi og einstaklega hlýlegur ilmur. Fæst í Skincarelab, 100 ml kosta 26.900 kr.
Zadig Eu de Parfum frá Zadig & Voltaire. 30 mæ kosta 12.999 kr. Hlýr og seiðandi Eau de Parfum-ilmur þar sem sesam og appelsínublóm blandast mjúkum tónum af vanillu og sandelviði.
09 Woman frá Made In Lab. 100 ml kosta 3.490 kr. og fæst í Hagkaup. Fágaður, ferskur og örlítið sætur kvenilmur. Klassískur og fágaður. Í ilminum blandast appelsína, mandarína, appelsínublóm, mímósa, bergamót og vanilla.
Mood Stones Velvet Brew frá Kylie Cosmetics.10 ml kosta 4.799 kr. Velvet Brew er djarfur og ætlaður þeim stundum þegar þú ert örugg með sjálfa þig, dularfull og ómótstæðileg. Hann er mjúkur, heillandi og ógleymanlegur.
Mineral Milk frá DedCool. Ferskur og seiðandi ilmur fyrir öll kyn sem minnir á sólaríkan dag við sjávarsíðuna. Saltur hafblær, mildur lavender, mjúkur musk og amberblóm skapa fágaðan og einstaklega heillandi ilm. Fæst í Nolu, 50 ml kosta 22.990 kr.
Útilykt frá Fishcer-sund og 66°Norður. Fangar einstakan ilm íslenskrar náttúru. Ferskt gras, sjávarþang, bergamot og mosi skapa heillandi ilm sem minnir á íslenska útiveru, ferskan hafblæ og kyrrð náttúrunnar. 50 ml kosta 28.900 kr.
Narciso Ambrée frá Narciso Rodriguez. Draumailmur fyrir konur sem elska hlýjan og seiðandi ilm. Musk, hvít blóm og amber skapa fágaða blöndu sem minnir á sólkyssta húð og ljúfa sumardaga. 50 ml kosta 17.499 kr.
No. 04 Bois de Balincourt frá Maison Louis Marie. Dásamlega fáguð ilmolía þar sem sandelviður, sedrusviður og kryddaðir tónar skapa hlýjan og seiðandi ilm. Fæst í Andrá, 15 ml kosta 11.990 kr.
Suede Petals frá Zöru. Fágaður og rómantískur ilmur sem heillar við fyrstu kynni. Mjúkir blómatónar og hlýlegur blær skapa kvenlegan og seiðandi ilm sem er fullkominn fyrir hversdaginn. 100 ml kosta 7.590 kr.
Chance Eau Splendide frá Chanel. Ilmvötnin frá Chanel eru klassísk. Þetta er ferskt, fágað og heillandi. Safarík hindber, rósageraníum og mjúkur hvítur musk skapa seiðandi blöndu sem geislar af kvenleika. 50 ml kosta 21.699 kr.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗






















