Hliðið að helvíti – Eldur hefur logað í rúmlega hálfa öld
Í um 55 ár hafa eldsbjarmar lýst upp myrkrið í miðri Karakumeyðimörkinni í Túrkmenistan. Allt hófst þetta með óhappi við boranir.
Eldurinn logar í Darvaza-gasgígnum, sem er þekktur sem hliðið að helvíti, og hafa gert í 55 ár.
Sovéskir jarðfræðingar leituðu að gasi á þessum slóðum 1971 og gerðu boranir í tengslum við leitina. Skyndilega hrundi jarðvegurinn undir borsvæði þeirra og myndaðist stór gígur sem gas streymdi úr. Til að takmarka gasstreymið var ákveðið að bera eld að gasinu því reiknað var með að það myndi brenna hratt upp.
En logarnir héldu áfram ár eftir ár og loga enn. Gígurinn er um 70 metrar á breidd og allt að 30 metra djúpur. Hann er nú orðinn eitt þekktasta kennileitið í Túrkmenistan.
Í myrkrinu sést eldurinn dansa yfir botni gígsins og því er staðurinn orðinn vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Darvaza-gígurinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗