Liverpool sagt farið að skoða kaup á Musiala
Liverpool gæti gert atlögu að þýska landsliðsmanninum Jamal Musiala næsta sumar en óvissa ríkir um framtíð hans hjá Bayern München.
Frá þessu greina ensk blöð en Musiala hefur glímt við erfið meiðsli og veikindi að undanförnu.
Hinn 23 ára gamli sóknartengiliður hefur aðeins leikið sex leiki fyrir Bayern á tímabilinu.
Forráðamenn þýska stórveldisins eru sagðir hafa áhyggjur af líkamlegu ástandi Musiala og gæti svo farið að félagið selji hann næsta sumar.
Musiala hefur lengi verið á óskalista Liverpool en samkvæmt fréttinni mun félagið aðeins gera tilraun til að fá leikmanninn takist honum að ná fullri heilsu fyrir lok tímabilsins.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗