Sat svo lengi á klósettinu að húðin gréri saman við setuna

Árið 2008 hringdi Corey McFarlane, unnusti hinnar 35 ára Pam Babcock, í neyðarlínuna og bað um aðstoð vegna Pam.

Pressan

Sunnudaginn 29. nóvember 2026 09:00

Corey bað um aðstoð lögreglunnar vegna unnustu sinnar sem var föst við klósettið.

Árið 2008 hringdi Corey McFarlane, unnusti hinnar 35 ára Pam Babcock, í neyðarlínuna og bað um aðstoð vegna Pam.

Þegar lögreglan kom heim til þeirra fann hún Pam sitjandi á klósettinu og þar hafði hún setið í næstum tvö ár að sögn Corey. Hann færði henni mat, vatn og hrein föt daglega en í hvert sinn sem hann bað hana um að koma fram svaraði hún: „Kannski á morgun.“

Ástæðan var að hún þjáðist af víðáttufælni, sem er ótti við opin svæði og umheiminn, sem blossaði upp þegar móðir hennar lést.

Eftir að hafa setið svona lengi á klósettinu hafði húð hennar gróið föst við klósettsetuna. Lögreglumennirnir urðu að nota sérstök verkfæri til að losa hana. Hún var síðan flutt á sjúkrahús með setuna fasta við afturendann.

Corey var ákærður fyrir að hafa vanrækt að hugsa vel um Pam en hún bað dómarann um að sýna honum miskunn og slapp hann með sex mánaða skilorðsbundinn dóm.

Þessi langa kyrrseta hafði mikil áhrif á Pam því hún hefur ekki getað gengið eftir þetta og notast því við hjólastól.

Pam þarf að nota hjólastól núna.

Málið er þörf áminning um hversu alvarlegur kvíði getur orðið þegar fólk fær ekki aðstoð í tæka tíð.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读