Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að gera mikið mál úr litlu

Mynd

Í þessu lífi er yfirleitt best að reyna að halda ró sinni, eins og hægt er. Líka í átökum við þá sem eru manni ekki sammála. Það er óþarfi að hlaupa til og klaga þá og kæra fyrir litlar sem engar sakir.

Það er æsingur víða og auðvelt að gera mikið mál úr litlu, eins og sýnir sig vel í furðulegu dómsmáli sem nú er rekið gegn Semu Erlu Serdaroglu. Hún er ábyrgðarmaður félagsins Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur, sem gekkst árið 2024 fyrir söfnun til að koma palestínskum fjölskyldum hingað til lands. Sema Erla er kærð fyrir að hafa ekki tilkynnt um þá söfnun til sýslumanns áður en hún hófst. Samkvæmt fréttum er afar algengt að safnanir séu tilkynntar eftir að söfnun er hafin, og ekki hefur verið venja að ákæra vegna þess.

Söfnunarfé Solaris var notað til að bjarga um tvö hundruð einstaklingum, aðallega konum og börnum, frá neyðinni í Gasa og koma þeim hingað til lands. Sú gjörð fór afar illa í einhverja harðlínumenn sem töluðu jafnvel um mútugreiðslur til erlendra starfsmanna varðandi flutning fólksins. Kæra var lögð fram um mútugreiðslur en lögregla hætti rannsókn. Nú er það tekið upp með áherslu á brot á lögum um opinberar fjársafnanir.

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, talaði um mútur í Spursmálaþætti seint á árinu 2025 og sagði: „... en það gengur náttúrulega alls ekki að hér sé eitthvað, einhver samtök sem kalla sig frjáls félagasamtök, að þau séu einhvern veginn með mútugreiðslum og öðru að taka fólk yfir landamærin sem eru lokuð og koma því fólki hér inn í landið, það gengur engan veginn.“

Samtökin Solaris hefðu átt að hrista þessar fullyrðingar Guðrúnar af sér og afgreiða þær sem fullyrðingar út í loftið. Það var ekki gert heldur fóru samtökin fyrr á þessu ári í algjörlega ónauðsynlegt meiðyrðamál við Guðrúnu. Pistlahöfundur veit ekki stöðuna á því máli en sjálfsagt lullar það áfram einhvers staðar í kerfinu.

Málið á hendur Semu Erlu er vissulega kjánalegt en það sama á við um meiðyrðamál Solaris gegn Guðrúnu. Tjáningarfrelsið á að vera mjög ríkt og yfirleitt er best að leyfa bulli og vitleysu að hafa sinn gang og láta eins og maður taki ekki eftir því. Það á líka við um svívirðingar og ásakanir, nema þær fari algjörlega úr böndum. Talið um mútur var eins og hvert annað þvaður og þarna hefðu forsvarsmenn Solaris átt að halda ró sinni. Þeim tókst það ekki.

Þeim tókst reyndar heldur ekki að halda ró sinn árið 2024 þegar Bjarni Benediktsson, þáverandi utanríkisráðherra, vísaði í tjaldbúðir Palestínumanna og stuðningsmanna þeirra á Austurvelli og sagði það vera algjörlega óásættanlegt að mótmælendur tjölduðu þar og gistu í lengri tíma. Hann sagði einnig að hælisleitendakerfið væri komið í mikinn vanda.

Ekkert athugavert er við þessar skoðanir Bjarna, þær áttu fullan rétt á sér. Stjórn Solaris sá þó ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu (sennilega vegna óbeitar á utanríkisráðherra) þar sem talað var um fordómafulla orðræðu hans sem gæti haft alvarlegar afleiðingar. Það var ansi dramatísk og öfgafull túlkun á orðum utanríkisráðherra, en kom kannski ekki á óvart frá samtökum sem vissulega vinna í nafni góðs málstaðar, en eru stundum allt of herská.

Pistlahöfundur vildi gjarnan sjá meiri ró innan samtakanna Solaris. Það breytir þó engu um þá skoðun hennar að fáránlegt sé að Sema Erla sæti ákæru vegna þess að hafa ekki skilað tilkynningu um söfnun á réttum tíma. 

Söfnun samtakanna gekk vel enda hafa flestir Íslendingar ríka samúð með Palestínumönnum og fordæma framferði Ísraelsmanna á Gasa. Þeir sömu álasa Semu Erlu ekki fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til að bjarga mannslífum. Víst er að samúð úr ýmsum áttum mun streyma til hennar.

Handhafi verðlauna Jónasar Hallgrímssonar í ár, Vilhjálmur Þorsteinsson, hefur tilkynnt að verðlaunafé hans muni renna til Semu Erlu til að styðja hana í baráttu hennar fyrir dómstólum. Hann telur að verið sé að ofsækja hana. Verulega ljótt ef satt er og samfélagi okkar ekki til sóma. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「DV.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读