Willum svekktur: Skiptir engu hvað ég geri
„Það skiptir engu máli hvað ég geri. Hann tekur ekki sína leikmenn út,“ sagði Willum Þór Willumsson, knattspyrnumaður hjá NEC í Hollandi, í samt…
„Það skiptir engu máli hvað ég geri. Hann tekur ekki sína leikmenn út,“ sagði Willum Þór Willumsson, knattspyrnumaður hjá NEC í Hollandi, í samtali við mbl.is um takmarkaðan spiltíma hjá félaginu.
Willum segir þjálfarann halda tryggð við þá leikmenn sem leika í hans stöðu. Fyrirliði liðsins sé þar á meðal og því sé erfitt að vinna sér sæti í byrjunarliðinu.
Hann skoraði gegn Fortuna Sittard fyrir rúmum mánuði en segir markið litlu hafa breytt.
„Þetta var bara gaman fyrir mig persónulega. Það er alltaf gaman að skora. Þetta gerði nú ekkert mikið fyrir mig. Ég spilaði fimm mínútur í næstu tveimur leikjum. Það segir kannski aðeins um stöðuna.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗