Hvort í sína áttina með tveggja vikna barn

Manuel Neuer, markvörður þýska knattspyrnufélagsins Bayern München, og eiginkona hans, Anika Bissel, hafa slitið samvistum tveimur vikum eftir f…

Bissel var aðeins 19 ára þegar þau byrjuðu saman.

Bissel var aðeins 19 ára þegar þau byrjuðu saman. Ljósmynd/Instagram/Anika Bissel

Manuel Neuer, markvörður þýska knattspyrnufélagsins Bayern München, og eiginkona hans, Anika Bissel, hafa slitið samvistum tveimur vikum eftir fæðingu annars sonar þeirra, að því er Bild greinir frá.

Neuer, sem er fertugur, og Bissel, sem er 26 ára, byrjuðu saman árið 2020 og giftu sig þremur árum síðar. Þau eiga tvö börn saman.

Bissel, sem er handboltakona en starfar nú sem pilates-kennari, gerði hlé á íþróttaferli sínum á síðasta tímabili til að verja meiri tíma með fyrsta barni þeirra.

„Þetta hefur verið erfið ákvörðun fyrir mig. Ég lít ekki á þetta sem endalok ferils míns, en ég vil fá meiri tíma með barninu mínu,“ sagði hún í yfirlýsingu á sínum tíma.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Íþróttafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读