Þétt var mömmuknúsið í Laugardalnum

Aron Einar umvafinn fjölskyldunni á Laugardalsvelli á dögunum.

„Það er erfitt að tárast ekki þegar fjölskylduna ber á góma. Hún hefur reynst mér ótrúlega vel,“ segir Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, en hann tilheyrir mikilli íþróttafjölskyldu frá Akureyri. Foreldrar hans eru Jóna Emilía Arnórsdóttir og Gunnar Malmquist Gunnarsson.

„Pabbi þjálfaði mig í handbolta og stuðningurinn frá þeim mömmu, systrum mínum og bræðrum hefur verið ómetanlegur. Þegar ég er beðinn um ráð varðandi stráka sem eru að fara ungir út í atvinnumennsku legg ég áherslu á að stuðningurinn sé alltaf bestur heima fyrir. Mitt fólk hefur alltaf verið til staðar fyrir mig og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Þau hafa gert mig að þeim manni sem ég er.“

Aron var ekki nema 17 ára þegar hann fór út til AZ Alkmaar í Hollandi og bjó þá hjá fjölskyldu á staðnum en eftir að hann færði sig yfir til Coventry á Englandi kom móðir hans út og bjó hjá honum í um þrjú ár. „Það var ómetanlegt að hafa mömmu úti. Hún hélt mér á jörðinni. Það er alls ekki sjálfgefið að mæður flytji til útlanda til að sjá um syni sína. Það hefur alltaf verið mjög sérstakt samband milli okkar mömmu og það var þétt knúsið á Laugardalsvellinum um daginn. Það var mjög dýrmætt að hafa þau pabba þar en þau flýttu flugi sínu heim frá Bandaríkjunum til að vera til staðar.“

Aron missti Tinnu Björgu systur sína fyrir þremur árum, aðeins fertuga að aldri. Banamein hennar var hjartastopp. 

„Ég vissi satt best að segja ekki hvernig ég ætti að díla við þetta áfall en fyrstu viðbrögð voru að taka utan um fjölskylduna. Ég hugaði ekki að sjálfum mér fyrr en síðar. Í raun ekki fyrr en árið eftir þegar ég kom aftur heim til Akureyrar og spilaði sex leiki fyrir Þór í fyrstu deildinni. Þá náði ég loksins að syrgja Tinnu almennilega. Ég var einn fyrir norðan og fann vel fyrir henni í þessu gamla samfélagi mínu. Það var mjög mikilvægur tími fyrir mig og ég átti samtal við prest sem sagði ekki óalgengt þegar maður missir ástvin að skellurinn kæmi síðar. Tinna átti þrjú börn og það var mjög flókið að taka utan um þau. En þeim gengur öllum vel í dag.“

Hann segir fráfall Tinnu hafa kennt sér margt, ekki síst að taka engu sem sjálfsögðum hlut í þessu lífi og plana ekki of langt fram í tímann. „Maður veit aldrei hvenær sinn tími kemur og fyrir vikið hef ég einbeitt mér að því í seinni tíð að njóta augnabliksins og vera í núinu.“

Nánar er rætt við Aron í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「mbl.is - Íþróttafréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读