Hringdi í alla gömlu þjálfarana
Aron Einar Gunnarsson fékk sér góðan göngutúr í vikunni og hringdi í flesta sína gömlu þjálfara til að þakka þeim fyrir samvinnuna. Í tilefni af…
Aron Einar Gunnarsson fékk sér góðan göngutúr í vikunni og hringdi í alla sína gömlu þjálfara úr landsliðinu til að þakka þeim fyrir samvinnuna í tilefni af því að hann hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.
„Mér fannst mér bera skylda til að þakka fyrir mig. Ég hef átt í góðu sambandi við mína þjálfara sem hafa gefið mér mikið. Þetta voru mjög góð samtöl og dýrmæt, ekki síst um það hvað tekur við að ferlinum loknum. Það er alltaf gott að geta leitað til góðra manna sem eru tilbúnir að gefa manni holl ráð,“ segir Aron.
Åge Hareide lést í fyrra en Aron sló á þráðinn til sonar hans og bað fyrir góða kveðju til fjölskyldunnar. „Hann kunni vel að meta það.“
– Hver af þessum þjálfurum stendur upp úr og reyndist þér best?
„Þú getur lagt saman tvo og tvo í þeim efnum. Fyrst voru það Lars og Heimir [Hallgrímsson] og svo Heimir eftir að hann tók einn við. Hann tók mig svo með sér til Katar og við heyrumst reglulega og ræðum allt milli himins og jarðar. Heimir þekkir mig betur en flestir og enginn þjálfari hefur haft meiri áhrif á mig sem leikmann og karakter.“
– Hvernig var samband þitt við Arnar Gunnlaugsson og hvernig skilurðu við hann sem landsliðsþjálfara?
„Ég held að ég eigi eftir að átta mig betur á því þegar ég verð orðinn þjálfari sjálfur. Auðvitað skildi ég hlutverk mitt í hópnum, sem leikmaður með mikla reynslu og skil að hann hafi viljað nota mig til að loka leikjum. Hann treysti mér greinilega ekki lengur til að hefja leiki. Arnar er með margar frábærar hugmyndir sem þjálfari en það var maður á mann-sambandið hjá okkur sem ósamræmi var í. Ég skil samt við Arnar á góðan hátt; það er engin kergja á milli okkar og við knúsuðumst eftir leikinn og hann óskaði mér til hamingju.“
Alltaf best að ræða hlutina
Aron hirngdi svo í Arnar, eins og hina þjálfarana í vikunni. „Mér finnst alltaf best að ræða hlutina og við áttum mjög gott og hreinskilið samtal. Samband okkar er gott og ég á ábyggilega eftir að leita til hans í framtíðinni upp á holl ráð og hugmyndir varðandi þjálfun. Arnar er sölumaður að upplagi og leggur mikla áherslu á að selja hópnum sínum ákveðna hugmynd um það hvernig spila eigi fótbolta. Það er gott og blessað og fór ekki í taugarnar á mér en ég veit að samanburðurinn við gullaldarliðið og að hann vilji ekki vinna leiki með sama hætti og við gerðum pirraði einhverja. En Arnar vill fara sínar eigin leiðir og vill búa til sitt lið. Með því stendur hann og fellur – eins og gengur og gerist í þessum bransa.“
Ítarlega er rætt við Aron Einar í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

