Söngvari The Beach Boys látinn
Mike Love, einn stofnenda og söngvari The Beach Boys, er látinn, 85 ára að aldri, að því er kynningarfulltrúi hans hefur staðfest.
Mike Love, einn stofnenda og söngvari The Beach Boys, er látinn, 85 ára að aldri, að því er kynningarfulltrúi hans hefur staðfest.
Hann lést á laugardagskvöld umkringdur fjölskyldu sinni, samkvæmt yfirlýsingu. Dánarorsök var ekki gefin upp.
Love stofnaði hljómsveitina árið 1961 í Kaliforníu ásamt frændum sínum, þar á meðal Brian Wilson, og vini.
Rödd hans má heyra í mörgum af sígildum smellum sveitarinnar sem hann samdi einnig, svo sem California Girls, Good Vibrations og I Get Around.
Kom síðast fram í október
The Beach Boys var ein vinsælasta hljómsveit Bandaríkjanna og samkvæmt vefsíðu sveitarinnar seldi hún yfir 100 milljónir platna um allan heim.
„Hans verður minnst sem bandarísks menningartákns, fyrir einstaka hæfileika sína og sem innblásturs fyrir kynslóðir tónlistarmanna,“ sagði í yfirlýsingunni þar sem greint var frá andláti hans.
„Við fögnum framúrskarandi framlagi hans til bandarískrar tónlistar og þeirri gleði sem hann fann þegar hann kom fram fyrir ástkæra aðdáendur sína,“ sagði þar enn fremur.
Love kom síðast fram 10. október í Ryman Auditorium í Nashville í Tennessee.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗