Jólagjöfin sem þú getur ekki skilað
Hvað dreymir þig um í jólagjöf?
Lára G. Sigurðardóttir læknir segir að það sé fátt vandræðalegra en að rekast á vin eða ættingja í verslunarmiðstöð þegar þú ert í um þann mund að fara að skila jólagjöfinni frá viðkomandi. Hún skrifar um það hvort það sé ekki kominn tími til að gefa samveru í jólagjöf.
Fátt er vandræðalegra en að rekast á vin eða ættingja á milli jóla og nýárs í skilaleiðangri í Kringlunni – haldandi á jólagjöfinni sem hann gaf þér. Augnablikið þar sem báðir reyna að haga sér eins og þú haldir ekki á vörunni sem kostaði hann tíma og orku að velja fyrir þig.
Við leggjum oft mikið á okkur í leit að einhverju til að gefa fólkinu sem okkur þykir vænt um. Við göngum búð úr búð, reynum að muna stærðir eða áhugamál og veltum fyrir okkur hvað viðkomanda „vantar“. Svo á aðfangadegi er pappírinn rifinn utan af og við krossum fingur í von um að innihaldið veki kátínu.
Oftar en ekki endar gjöfin í geymslunni, stundum á sölusíðum alnetsins eða aftur í Kringlunni ef hún hafði skilamiða. Gæti ein ástæða þess verið að mörg okkar skortir raunverulega ekki meira dót?
Aftur á móti vantar mörg okkar meiri tíma, sérstaklega tíma með fólki sem er okkur kært. Merkir menn hafi kveðið um mikilvægi tímans, en samt eru gæðastundir oft eitthvað sem við látum mæta afgangi: „Við verðum að fara að hittast“, „Förum í göngu einhvern daginn“ eða „Ég hringi þegar það róast aðeins.“
Orðin endurtaka sig við næsta tækifæri og eru orðin að einskonar bergmáli. Dagarnir fyllast hratt af vinnu, skilaboðum, innkaupum, skutli og verkefnum sem virðast alltaf brýnni en kaffibollinn sem við ætluðum að fá okkur með vinkonunni eða göngutúrinn með pabba.
Margt bendir til þess að einmitt þessar stundir séu meðal þess verðmætasta sem við getum veitt okkur.
Harvard Study of Adult Development er ein lengsta rannsókn sinnar tegundar þar sem fólki var fylgt eftir í áratugi. Vísindamennirnir vildu komast að því hvað spáði helst fyrir um hamingju og góða heilsu síðar á ævinni. Flestir þátttakendur töldu frægð, frama og auðæfi vera lykil að hamingjusömu og góðu lífi en rannsakendur töldu það vera líkamlegt hreysti, gáfur og persónuleikaeinkenni. Niðurstöðurnar vöktu mikla athygli því þvert á móti kom í ljós að góð og náin tengsl eða samskipti við aðra spáði mest fyrir um gott og gæfuríkt líf.
Innst inni vitum við að það sem skiptir okkur flest máli er annað fólk. Fólkið sem við getum hringt í. Fólkið sem sest niður með okkur. Fólkið sem hlustar.
Góð félagsleg tengsl snúast ekki bara um að okkur „líði vel“ með öðru fólki, heldur tengjast þau heilsu. Í stórri safngreiningu sem náði til rúmlega 300 þúsund einstaklinga tengdust góð félagsleg tengsl auknum lífslíkum.
Við mannfólkið erum upp til hópa félagsverur. Þegar við upplifum okkur örugg í tengslum við annað fólk getur það meðal annars hjálpað okkur að ná okkur niður eftir streitu. Gott samtal leysir okkur kannski ekki undan vandamálinu, en það getur breytt því hvernig líkami og heili takast á við það. Einhver okkar þekkja á eigin skinni það að ganga frá vin eða ættingja léttari í lund eftir góða samverustund.
Til viðbótar hafa rannsóknir sýnt að það að setja krónur í upplifanir gefur okkur meiri og langvinnari ánægju heldur en að kaupa hluti. Ein skýringin er sú að upplifunin hverfur ekki endilega þegar henni lýkur. Hún verður að minningu, sögu sem við rifjum upp við góð tækifæri og hluti af sambandi við viðkomandi.
Ein leið til að gefa af tíma sínum er að gefa samverustund. Það þarf alls ekki að vera flókið, því það er samveran sem er dýrmætust. Þú getur til dæmis gefið einhverjum út að borða með þér, í leikhús, göngutúr, sund, gusu eða jafnvel óvissuferð. Skilaboðin geta einfaldlega verið „Mig langar að eyða tíma með þér.”
Við lifum á tímum þar sem nánast allt er falt. En við getum ekki keypt fleiri klukkustundir í deginum. Þess vegna er tíminn okkar kannski ein einlægasta gjöfin sem við gefum. Með honum erum við að segja við aðra manneskju að hún skiptir okkur máli og að við viljum verja hluta af lífi okkar með henni.
Og það besta er kannski að samverustund þarf ekki að passa í neina fatastærð og það þarf enga gjafakvittun - því það þarf ekki að skila henni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗