Jörð skelfur í Reykjadal

Jarðskjálfti að stærð 3,4 varð í Reykjadal kl. 10:51 í morgun. Mjög lítil eftirskjálftavirkni hefur fylgt.

Innlent | mbl | 28.11.2026 | 11:23

Engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Skjáskot/Veðurstofan

Jarðskjálfti að stærð 3,4 varð í Reykjadal kl. 10:51 í morgun. Mjög lítil eftirskjálftavirkni hefur fylgt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands, en engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist í byggð.

Síðast varð skjálfti á þessum stað af þessari stærð í október 2021 en sá var 3,3 að stærð.

Skjálftar sem þessir eru óalgengir en þó ekki óeðlilegir á þessu svæði. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Innlendar fréttir」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读