Jólaljósin tenduð á Hamborgartrénu
Árleg hátíð verður á Miðbakka Gömlu hafnarinnar í dag, laugardag klukkan 17, þegar ljósin verða tendruð á Hamborgarjólatrénu. Þetta er fastur li…
Árleg hátíð verður á Miðbakka Gömlu hafnarinnar í dag, laugardag klukkan 17, þegar ljósin verða tendruð á Hamborgarjólatrénu.
Þetta er fastur liður í upphafi aðventunnar í Reykjavík. Við athöfnina verður flutt jólakveðja frá Faxaflóahöfnum og sendiherra Þýskalands tendrar ljósin á trénu.
Jólasveinarnir koma sjóleiðina á dráttarbátnum Magna, sem mun leggja að Miðbakkanum. Jólasveinarnir skemmta gestum, ungum og öldnum. Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur jólalög.
Síðan munu jólasveinarnir leiða gesti að Landsbankanum við Reykjastræti 6. Þar verður boðið upp á fiskisúpu í boði Brims og jólasveinarnir og harmonikkuleikari sjá um skemmtun og jólalög. Allir eru velkomnir í fagnaðinn.
Saga Hamborgartrésins nær aftur til ársins 1965 en það ár hófu hafnaryfirvöld í Hamborg að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar. Var það í þakklætisskyni við íslenska sjómenn fyrir gjafmildi þeirra við þýsk börn árin eftir seinni heimsstyrjöldina.
Ekki er lengur siglt með trén landa á milli heldur eru þau sótt í íslenska skóga. [email protected]
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗