Dóttir Manuelu mætti í Tyson-kjólnum

Manuela Ósk Harðardóttir birti mynd af dóttur sinni þegar hún fór á Vælið. Samsett mynd/Skjáskot Instagram/ mbl.is/Jón Svavarsson

Manuela Ósk Morthens, áður Harðardóttir, athafnakona og fegurðardrottning, birti mynd af dóttur sinni, Elmu Rós Grétarsdóttur Steinsson, á leiðinni á söngvakeppni Verslinga um helgina. Dóttir hennar klæddst sama kjól og Manuela var í þegar hún var valin ungfrú Ísland árið 2002.

Elma er dóttir Manuelu og Grétars Rafns Steinssonar fyrrverandi fótboltastjörnu. Hann spilaði með Bolton Wanders í ensku úrvalsdeildinni en leiðir hans og Manuelu skildi 2011. Þá var Elma ársgömul. Hann er og hefur verið búsettur í Bretlandi síðan hann var atvinnumaður í fótbolta. 

Elma er 16 ára og því nálægt móður sinni í aldri þegar hún var fyrst valin Ungfrú Reykjavík og síðar ungfrú Ísland. Manuela var aðeins 18 ára þegar hún var valin sú fegursta. Erla Tinna Stefánsdóttir varð í öðru sæti og Íris Hauksdóttir í því þriðja. Sigríður Pétursdóttir og Aldís Páldóttir voru valdar vinsælustu stúlkurnar. Anna Lilja Johansen var valin ljósmyndafyrirsæta keppninnar. Seinn áttu þær Anna Lilja og Manuela eftir að vinna saman þegar þær stofnuðu fatamerkið Malla Johansen. Samstarfið stóð þó ekki mjög lengi yfir. 

Manuela Ósk Harðardóttir árið 2002 í Tyson-kjólnum.

Manuela Ósk Harðardóttir árið 2002 í Tyson-kjólnum. mbl.is/Jón Svavarsson

Manúela Ósk er fegurst Reykjavíkurmeyja. Erla Tinna Stefánsdóttir hreppti annað sætið og Íris Hauksdóttir það þriðja. Ljósmyndafyrirsætan var valin Anna Lilja Johansen. mbl.is/Jón Svavarsson

Manuela klæddist rauðum kjól frá Versace þegar hún tók við fegurðartitlunum en kjóllinn og sagan á bak við hann vakti gríðarlega athygli. Kjóllinn var gjöf frá hnefaleikakappanum Mike Tyson en þau hittust fyrir tilviljun á förnum vegi í New York. Kjóllinn vakti heimsathygli og er augljóslega lífstíðareign sem gengur á milli kynslóða. 

Manuela stimplaði sig rækilega inn í íslenskt samfélag strax 18 ára gömul og hefur síðan þá vakið athygli. Sem er ekkert skrýtið. Það er alltaf eitthvað að frétta af Manuelu! 

Ljósmyndafyrirsætan var valin Anna Lilja Johansen.

Ljósmyndafyrirsætan var valin Anna Lilja Johansen. mbl.is/Jón Svavarsson

Hans Guðmundsson, Björn Leifsson og Íris B. Árnadóttir voru í dómnefnd í Ungfrú Reykjavík 2002. Ungfrú Reykjavík 2002, Hans, Björn og Íris Björk. mbl.is/Jón Svavarsson

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅