Katrín stal senunni í indverskum kjól

Katrín bar gamla konunglega skartgripi við nýja kjólinn.

Katrín bar gamla konunglega skartgripi við nýja kjólinn. AFP

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa eru í opinberi ferð í Indlandi. Hjónin voru sérstaklega glæsileg þegar Erthshot-umverfisverðlaunin voru afhent í Mumbai á þriðjudaginn. 

Katrín klæddi sig upp fyrir tilefnið en hún var í rauðum indverskum kjól sem kallast Anarkali og heiðraði þannig gestgjafaland verðlaunanna í ár. Kjóllinn var handofinn og prýddur hefðbundnu gylltu Banarasi-skrauti, flóknum handsaumi og perluskreytingum. Djúprauði liturinn fékkst með jurtalitum, sem var vísun í sjálfbærniþema kvöldsins sem og vísun í textílarfleifð Indlands. Kjóllinn er frá inverska fatahönnuðinum Mahima Mahajan en fatahönnuðurinn selur lúxusfatnað fyrir konur.

Prinsessan bar konunglega skartgripi við kjólinn. Hálsmenið og eyrnalokkarnir sem hún bar voru í eigu Elísabetar drottningar en skartið passaði fullkomlega við kjólinn. Vilhjálmur lét ekki sitt eftir liggja en hann var í sérsaumuðum bandhgala frá Manish Malhotra. 

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa voru glæsileg í indverskum fatnaði í Mumbai. AFP/ Punit PARANJPE

Eins og sjá má voru allir í einu fínasta pússi á rauða dreglinum. 

Breska leikkonan Simone Ashley mætti í sparifötunum.

Breska leikkonan Simone Ashley mætti í sparifötunum. AFP/ Punit PARANJPE

Suður-afríska leikkonan Nomzamo Mbatha var glæsileg til fara.

Suður-afríska leikkonan Nomzamo Mbatha var glæsileg til fara. AFP/ Punit PARANJPE

Bollywood-leikkonan Sonam Kapoor.

Bollywood-leikkonan Sonam Kapoor. AFP/Punit PARANJPE

Bollywood-leikkonan Alia Bhatt.

Bollywood-leikkonan Alia Bhatt. AFP/Punit PARANJPE

Bandaríski leikarinn Rami Malek var vestrænn til fara.

Bandaríski leikarinn Rami Malek var vestrænn til fara. AFP/Punit PARANJPE

Jacinda Ardern fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands lét sig ekki vanta.

Jacinda Ardern fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands lét sig ekki vanta. AFP/Punit PARANJPE

内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab