Vopnaðir menn rændu flutningaskipi
Vopnaðir menn hafa rænt flutningaskipi undan suðurströnd Jemens, að því er breska siglingaöryggismiðstöðin UKMTO greinir frá í dag.
Erlent | AFP | 28.11.2026 | 11:40
Sérfræðingar hafa bent á að sjóránum á hafsvæðunum við Horn Afríku hafi fjölgað á undanförnu ári. Mynd úr safni. AFP
Vopnaðir menn hafa rænt flutningaskipi undan suðurströnd Jemens, að því er breska siglingaöryggismiðstöðin UKMTO greinir frá í dag.
„Óviðkomandi aðilar hafa náð skipinu á sitt vald. Yfirvöldum hefur verið gert viðvart,“ segir í tilkynningu frá miðstöðinni.
Þar kemur jafnframt fram að árásarmennirnir hafi farið um borð í skipið um 120 kílómetra suðvestur af Balhaf í Jemen.
Sérfræðingar hafa bent á að sjóránum á hafsvæðunum við Horn Afríku hafi fjölgað á undanförnu ári.
Skip á hafsvæðum við Arabíuskagann hafa einnig ítrekað orðið fyrir barðinu á átökunum í Mið-Austurlöndum frá því að árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í febrúar hrundu stríðinu af stað.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗