Jörð skelfur í Reykjadal
Jarðskjálfti að stærð 3,4 varð í Reykjadal kl. 10:51 í morgun. Mjög lítil eftirskjálftavirkni hefur fylgt.
Innlent | mbl | 28.11.2026 | 11:23
Jarðskjálfti að stærð 3,4 varð í Reykjadal kl. 10:51 í morgun. Mjög lítil eftirskjálftavirkni hefur fylgt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands, en engar tilkynningar hafa borist um að skjálftinn hafi fundist í byggð.
Síðast varð skjálfti á þessum stað af þessari stærð í október 2021 en sá var 3,3 að stærð.
Skjálftar sem þessir eru óalgengir en þó ekki óeðlilegir á þessu svæði.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/64/1696434.jpg)