Gáfust upp á að leigja og keyptu sér hjólhýsi

Dísa Björk og Arnar Freyr hafa búið í hjólhýsi í tvö ár og safna fyrir eigin húsi í sveitinni.

Dísa Björk Birkisdóttir og Arnar Freyr Guðjónsson fluttu úr Reykjavík í hjólhýsi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi árið 2024. Samsett mynd

Dísa Björk Birkisdóttir rafvirkjanemi og kærasti hennar, Arnar Freyr Guðjónsson öryggisvörður, hafa undanfarin tvö ár búið með kettinum sínum í hjólhýsi á landi foreldra hennar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Þangað fluttu þau úr Reykjavík árið 2024 eftir að hafa kannað hvað það myndi kosta þau að leigja litla íbúð í borginni.

„Við bjuggum í bænum með tveimur vinum okkar og bjuggum í ágætri íbúð þar. Svo byrjaði allt að hækka,“ segir Dísa Björk. 

Eftir þrjú ár var komið að því að vinirnir færu hver sína leið. Annar vinanna hafði keypt sér íbúð og hinn vildi sömuleiðis kaupa.

„Við ætluðum fyrst að halda áfram að leigja, ætluðum að fara í eitthvað mjög lítið húsnæði þannig að við gætum safnað okkur og keypt,“ segir Dísa Björk.

Í ljós kom að þau þyrftu að reiða fram yfir hálfa milljón króna í tryggingu fyrir stúdíóíbúð. „Við fengum smá sjokk yfir því,“ tekur hún fram.

Fengu lánaðar gröfu hjá nágrönnunum

Úr varð að þau keyptu hjólhýsi og komu sér fyrir á Lambhúshóli á jörð foreldra Dísu Bjarkar. Hóllinn dró nafn sitt af lambhúsi sem þar stóð áður.

„Við grófum hann niður, fengum lánaðar gröfu frá nágrönnum sem pabbi gat notað og reyndum að gera eins mikið og við gátum sjálf.“

Við hlið hjólhýsisins stendur gámur þar sem þau hafa komið sér upp eldhúsi, salerni og sturtu. Þar kom námið Dísu Björk að góðum notum. „Ég tengdi hann sjálf. Fékk svo meistara til að koma og fara yfir hjá mér,“ segir hún.

Enn þurfa þau að fara út til að komast á milli hjólhýsisins og gámsins, hvernig sem viðrar.

„Planið er að hafa gang á milli þannig að við þurfum ekki að moka snjónum um miðja nótt ef við þurfum að fara á klósettið,“ bendir hún á.

Fyrst eftir flutningana vaggaði hjólhýsið svo mikið í roki að Dísu Björk fannst hún vera komin aftur í barnavagn þegar hún lagðist til svefns. Ljósmynd/Aðsend

„Eins og að vera kominn í barnavagninn aftur“

Dísa Björk segir notalegt að búa í hjólhýsinu en fyrst eftir að þau fluttu inn hafi það vaggað töluvert þegar hvessti.

„Þegar maður var að fara að sofa í appelsínugulri viðvörun þá var þetta eins og að vera kominn í barnavagninn aftur.“

Það kom þeim líka á óvart hversu hátt heyrist í úrkomunni. Létt rigning eða snjókoma getur hljómað eins og hellidemba þegar inn er komið. „Stundum heyrir maður ekki í öðrum bara út af veðrinu. Það var svona ný upplifun fyrir okkur.“

Einn veturinn bilaði stjórnkerfi hjólhýsisins og hitinn fór af því. „Þá þurftum við að keyra hjólhýsið í bæinn í viðgerð og við fluttum inn til mömmu og pabba,“ segir Dísa Björk.

Ná að leggja fyrir þótt Dísa sé í fullu námi

Dísa Björk segist finna mikinn mun á fjárhagnum síðan þau fóru af leigumarkaðnum þrátt fyrir að hafa byrjað í fullu námi stuttu eftir búferlaflutninginn.

„Ég er ekki að vinna nærri því eins mikið og ég gerði þegar við bjuggum í bænum. En við erum að ná að safna alveg frekar miklu og svo er líka rosalega gott að vera nálægt mömmu og pabba því þau eru alltaf til í að hjálpa okkur.

Dísa Björk er að ljúka náminu og ætlar þá að fara í fulla vinnu. Hún segir að með tímanum muni þau Arnar Freyr eignast landið þar sem hjólhýsið stendur. Þar vilja þau koma sér upp rúmgóðu framtíðarheimili og hafa velt fyrir sér að flytja inn einingarhús.

„Við vorum búin að skoða eitt sem kostaði 30 milljónir, sem er eiginlega ekkert miðað við íbúðirnar í bænum sem eru helmingi minni,“ bendir hún á að lokum.

Dísa Björk og Arnar Freyr safna fyrir eigin húsi í sveitinni og hafa skoðað þann kost að flytja inn einingarhús á 30 milljónir króna. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读