OpenAI svarar Apple í sömu mynt

OpenAI sakar Apple um að hafa komist yfir viðskiptaleyndarmál fyrirtækisins með aðstoð fyrrverandi starfsmanns OpenAI og beitt sameiginlega birg…

Sam Altman, forstjóri OpenAI.

Sam Altman, forstjóri OpenAI. AFP

Gervigreindarfyrirtækið OpenAI höfðaði í gær gagnmál gegn tæknifyrirtækinu Apple og sakar það um sams konar þjófnað á viðskiptaleyndarmálum og Apple sakaði OpenAI um í sumar.

OpenAI sakar Apple um að hafa komist yfir viðskiptaleyndarmál fyrirtækisins með aðstoð fyrrverandi starfsmanns OpenAI og beitt sameiginlega birgja fyrirtækjanna þrýstingi í því skyni að torvelda innreið OpenAI á markað fyrir nettengd tæki.

Talsmaður Apple sagði gagnmálið vera „augljósa tilraun til að beina athyglinni frá efnisatriðum“ málsins sem Apple höfðaði.

Gagnmálið var höfðað í gær fyrir alríkisdómstóli í San Jose í Kaliforníu í tengslum við mál sem Apple höfðaði í júlí gegn OpenAI og tveimur starfsmönnum þess sem áður störfuðu hjá Apple.

Fyrirtækin hafa átt í samstarfi frá því að ChatGPT var samþætt vörum Apple árið 2024 en útlit er fyrir að þau verði brátt keppinautar. OpenAI vinnur nú að þróun sinna fyrstu nettengdu tækja, sem sérstaklega eru hönnuð með gervigreind í huga, í samstarfi við hönnunarstofu Jony Ive, fyrrverandi yfirhönnuðar Apple.

Talsmaður Apple sagði gagnmálið vera „augljósa tilraun til að beina athyglinni frá efnisatriðum“ málsins sem Apple höfðaði. AFP

Saka Apple um að beita birgja þrýstingi

Lögmenn OpenAI segja í málsskjölum að Apple leitist við að beita öllum tiltækum ráðum til að stunda ósanngjarna samkeppni.

Samkvæmt skjölunum krefst Apple þess að birgjar upplýsi hvaða verkefnum þeir sinni fyrir OpenAI og hvaða starfsmenn þeirra komi að verkefnunum.

„Birgjar hafa lýst yfir ótta við að missa viðskipti við Apple og hafa fært fundi með OpenAI til á milli staða eða breytt tímasetningu þeirra til að koma í veg fyrir að Apple verði þeirra vart,“ segir í málsskjölunum.

Einn birgir hafi fært framleiðslu fyrir OpenAI yfir á næturvakt en annar hætt við fyrirhuguð verkefni „vegna hótana frá Apple“. Ekki er greint frá því í málsskjölunum hvaða birgjar eiga í hlut.

Saka fyrrverandi starfsmann um að hafa sent sér tugi skjala

OpenAI sakar jafnframt fyrrverandi starfsmann sinn um að hafa sent tugi skjala fyrirtækisins, sem vörðuðu frumgerð tækis, í eigin símanúmer.

Maðurinn starfaði áður hjá Apple en réð sig til OpenAI þar sem hann starfaði í sex mánuði áður en hann sneri aftur til Apple í júní.

Að sögn OpenAI kynnti hann síðan áætlanir fyrirtækisins fyrir háttsettum starfsmönnum Apple í júlí að beiðni Apple.

Lögmenn OpenAI gera einnig athugasemdir við ákvæði sem bannar fyrrverandi starfsmönnum Apple, sem hefja störf hjá OpenAI, að reyna að fá fyrrverandi samstarfsfólk sitt til liðs við OpenAI í eitt ár.

Þá gagnrýna lögmennirnir starfshætti Apple sem þeir segja felast í því að starfsmenn séu hvattir til að blanda saman vinnutengdum og persónulegum gögnum á eigin iCloud-reikningum. Þannig geti Apple síðar sakað þá sem láta af störfum um þjófnað á upplýsingum.

Segir starfsmenn hafa stolið upplýsingum af ásetningi

„Þetta mál snýst um að starfsmenn OpenAI hafi vísvitandi stolið, aflað sér aðgangs að og nýtt sér leynilegar og trúnaðarupplýsingar Apple um tækni, ferla og vörur sem enn hafa ekki verið kynntar opinberlega. Málið snýst ekki um að starfsmenn hafi fyrir mistök haldið eftir upplýsingum frá Apple,“ sagði talsmaður Apple í samtali við AFP-fréttastofuna og óskaði eftir því að ekki yrði greint frá nafni sínu.

OpenAI féll í gær einnig frá kröfu sinni um að máli Apple yrði vísað frá dómi. Ekki var gefin upp ástæða þess.

Í október hét OpenAI því að nýta sér ekki þær upplýsingar sem Apple segir vera viðskiptaleyndarmál sín. Það var gert eftir að dómarinn í málinu hafði sagt afar líklegt að hann myndi leggja bann við því að OpenAI nýtti sér upplýsingarnar þar til málið yrði tekið til aðalmeðferðar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读