Skilur ákvörðun Arnars Gunnlaugssonar

„Ég var ekkert að búast við að vera valinn núna þegar ég er ekki að spila,“ sagði Willum Þór Willumsson, knattspyrnumaður hjá NEC í Hollandi, í samtali við mbl.is um að vera utan íslenska landsliðshópsins.

Willum segir það svekkjandi að missa af landsliðsverkefnum en skilur ákvörðun Arnars Gunnlaugssonar landsliðsþjálfara.

„Það er alltaf gaman að koma í landsliðið og spila fyrir Ísland. En auðvitað skilur maður það þegar maður er ekki að spila og aðrir eru að spila og standa sig vel.“

Hann vonast til að vinna sér aftur sæti í hópnum með auknum spiltíma hjá félagsliði sínu. „Ef maður spilar og stendur sig vel fær maður vonandi tækifæri aftur.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

来自「Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti」的更多文章

查看全部文章

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab

相关阅读