Ekkert gengur hjá Chelsea
Fyrirliðinn Morgan Gibbs-White fór mikinn þegar Nottingham Forest vann Chelsea, 3:2, í fyrsta leik tólfu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fót…
Fyrirliðinn Morgan Gibbs-White fór mikinn þegar Nottingham Forest vann Chelsea, 3:2, í fyrsta leik tólfu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á City Ground í Nottingham í kvöld.
Forest er komið upp í 14. sæti deildarinnar með tólf stig eftir sigurinn en Chelsea er í áttunda sæti með 16.
Chelsea hefur nú tapað þremur leikjum í röð í deildinni og fjórum af síðustu fimm.
Igor Jesus kom Forest yfir strax á fimmtu mínútu leiksins og Gibbs-White bætti við öðru marki liðsins úr vítaspyrnu á 51. mínútu.
Varamaðurinn Emanuel Emegha minnkaði muninn fyrir Chelsea á 54. mínútu en Gibbs-White skoraði síðan sitt annað mark og þriðja mark Forest á 72. mínútu.
Emegha var aftur á ferðinni fyrir Chelsea á 89. mínútu þegar hann minnkaði muninn í 3:2 en nær komust Chelsea-menn ekki.
Nottingham Forest heimsækir Hull í næstu umferð en Chelsea fær Crystal Palace í heimsókn.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗